Verða þéttir og kynþokkafullir 9. október 2006 10:45 Islands. Sendu frá sér plötuna Return to the Sea fyrr á árinu en þar er að finna eitt það besta sem komið hefur út lengi í framsæknu poppi.
Viðtal við kanadísku hljómsveitina Islands birtist á síðum Fréttablaðsins og á Vísi í júlí. Steinþór Helgi Arnsteinsson hitti þá nokkra meðlimi sveitarinnar í Münster í Þýskalandi og ræddi við þá um komu hljómsveitarinar á Airwaves. Steinþór hafði aftur samband við Nick Diamonds, aðalspíru sveitarinnar, núna þegar innan við tvær vikur eru í að Airwaves hefjist. Í fyrstu lá beinast við að spyrja Nick hvað hljómsveitin og hann hefðu aðhafst síðan í Münster. „Ég ánetjaðist krakki en hætti síðan í því og svo byrjaði ég með Jessicu Simpson, æi, bara þetta venjulega," svarar Diamonds afar blíðlega. Hljómsveitin hefur verið á tónleikaferðalagi nær allt árið og eftir Airwaves tekur við önnur mjög þétt dagskrá. „Þetta er brjálæði, sérstaklega þar sem við erum nýkomin úr ferðalagi um Evrópu en þetta kemur hljómsveitinni á framfæri," segir Nick þreytulega.Ný plata að árihöfuðpaurinn Nick Diamonds á tónleikum Islands í Münster sem fóru fram í júlí.fréttablaðið/steinþórHljómsveitin hefur þó ekki setið auðum höndum á tónleikaferðlaginu heldur er hún nú komin með heilan helling af nýjum lögum fyrir plötu sem Nick segir að komi líklegast út um haustið. „Upptökur eru ekki hafnar en við erum að setja saman dagskrá. Við ætlum að taka upp plötuna sjálf (í fyrra viðtalinu nefndi Nick menn eins og Jeff Lynne úr ELO, Phil Spector og Kurt Cobain sem óskaupptökustjóra) en fá hins vegar með okkur mjög hæfileikaríka hljóðmenn."Nick efast ekki um að nýja platan verði betri en sú fyrsta. „Nýja platan verður þyngri á alla vegu og rokkaðri. Við viljum gera bestu plötu sem við mögulega getum gert," útskýrir Nick og bætir við að innblásturinn sé allt og ekkert.Hatar ekki athyglinaÍ Münster lofaði Nick því að ofgera ekki hljómsveitinni fyrir Íslandsförina, en Nick hefur stundum þótt einum of atorkusamur í tengslum við tónlist sína. „Ég er samt búinn að reka einn meðlim, nei, ég er að grínast. Við erum þó orðin sex (voru áður sjö) vegna þess að við misstum fallegasta meðlim okkar, Kate, í nám. En í staðinn fæ ég meiri athygli," segir Nick sem greinlega hatar ekki athygli. „Nei, ég dýrka hana." Ætlar að skoða nýja tónlist og leita að álfumEftir svona langt og mikið ferðalag hlýtur Nick að geta lofað frábærri tónleikaupplifun. „Nei, við munum sökka. Nei, nei, við erum að verða mun einbeittari sem hljómsveit og skipulagðari. Á Íslandi verðum við bæði þéttir og kynþokkafullir." Hljómsveitin fær einnig ágætis frí á Íslandi og ætlar Nick að nýta það vel. „Mig langar að leita eftir álfum í skóginum, fara í þyrlu upp að jökli og síðan að ríða á hesti inn í sólarlagið." Nick ætlar einnig að skoða íslenskt tónlistarlíf. „Ég vil ekki hanga í baði á hótelinu og taka endalaust af kóki í nösina allan tímann. Ég vil frekar hlusta á nýja tónlist og leita að álfum."
Menning Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Lífið samstarf Eva Marie Saint er látin Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira