Tók upp millinafnið Náttmörður 22. september 2006 16:30 Benjamín náttvörður árnason Skálaði í kampavíni ásamt vinum sínum eftir nafnabreytinguna. MYND/anton
Ég þurfti að berjast við skrifræðið í heilt ár áður en ég fékk þetta samþykkt, segir hinn 21 árs gamli Benjamín Náttmörður Árnason, sem fékk hinu sérstaka millinafni bætt við nafn sitt í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu í gær. Náttmörður er í hljómsveitinni Man Behind the Wheel og segir mikilvægt að hafa grípandi nafn í rokkbransanum. Tilurð nafnsins má einmitt rekja til tónleikaferðalags hljómsveitarinnar í Bandaríkjunum í fyrra. Við vorum að túra þar og einsog gerist þegar maður dvelur fjarri heimahögunum er auðvelt að ruglast í ríminu. Einu sinni vaknaði ég af slæmum svefni og ruglaði saman orðinu martröð og enska orðinu nightmare og sagði stundarhátt: Strákar, ég fékk hrikalegan náttmörð. Eftir það var Benjamín ekki kallaður annað en Náttmörður. Þetta er líka flott nafn og fellur vel að íslenskunni, þannig ég dreif mig upp í ráðuneyti og sótti um að fá því bætt við nafnið mitt. Þá tók við það sem Náttmörður kallar búrókratískt stríð við dómsmálaráðuneytið, sem lauk á miðvikudag þegar hann fékk bréf frá ráðuneytinu þess efnis að nafnið hefði verið samþykkt. Náttmörður mætti í dómsmálaráðuneytið í gær, ásamt fríðu föruneyti, og skrifaði undir gjörninginn. Eftir á var skálað í kampavíni enda heimsfrægð í seilingarfjarlægð. Með svona flott nafn verður ekkert mál að sigra heiminn.
Menning Mest lesið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Fleiri fréttir Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Sjá meira