Lífið

Óheft frelsi möguleikanna

Benedikt Erlingsson
Benedikt Erlingsson

Philippine Bausch fæddist 1940 í Þýskalandi og hóf dansnám 15 ára gömul við Folkwang-skólann í Essen en að loknu námi þar hélt hún til New York og lærði við hinn virta Juilliard-skóla þaðan sem hún var nýlega sæmd heiðursdoktorsnafnbót. Eftir að hún sneri heim tveimur árum síðar, dansaði hún við Folkwang-ballettinn sem sólódansari um nokkurra ára skeið, þar á meðal undir stjórn hins virta Kurt Jooss.

Fyrsta dansverk sitt samdi hún árið 1968, en heimsfræg verk hennar hlaupa nú á tugum. Skömmu síðar tók hún við listrænni stjórn Folkwang-ballettsins og starfaði þar jafnt sem stjórnandi, danshöfundur og dansari þar til henni var boðin staða stjórnanda Wuppertal Opera Ballet.

Auður Bjarnadóttir

Pina Bausch tók með sér dansara úr gamla flokknum sínum og hóf að byggja upp öflugan flokk sem að hluta starfar enn með henni. Fljótlega var nafni flokksins breytt í Tanztheatre Wuppertal Pina Bausch en hann er nú einn af eftirsóttustu dansflokkum heims og hefur hann hlotið ótal verðlaun.

Pina bausch

Dansleikhús Pinu Bausch sýnir verkið Aqua í Borgarleikhúsinu næstkomandi sunnudag en aðeins verða sýndar þrjár aðrar sýningar. Á þriðja tug dansara tekur þátt í sýningunni en stórfenglega leikmyndina þurfti að flytja hingað til lands í þremur 40 feta gámum.

Það væri að æra óstöðugan að ætla sér að lýsa verkum Pinu Bausch svo vel sé, en þess má þó geta að sterkra suður-amerískra áhrifa gætir í sýningunni Aqua enda var hún samin í samráði við stjórn Sao Paolo í Brasilíu og þar koma við sögu pálmatré og drykkurinn pina colada. Annað verður framtíðin að leiða í ljós en víst er að dansleikhússdrottingin mun án efa koma áhorfendum sínum á óvart.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.