Aldrei verið skammaður 6. september 2006 11:00 Heiðar Ástvaldsson Fagnar fimmtíu ára afmæli dansskólans en ætlar ekkert að halda neitt sérstaklega upp á það. MYND/Anton
Dansskóli Heiðars Ástvaldssonar á fimmtíu ára starfsafmæli um þessar mundir. Heiðar segist þó ekki ætla að halda sérstaklega upp á þennan viðburð. "Við konan mín eigum bæði stórafmæli á árinu og ég hreinlega nenni ekki fleiri veisluhöldum," segir Heiðar, kátur að vanda. Tugir þúsunda nemenda hafa sótt námskeið í skólanum á þessum fimmtíu árum og Heiðar segist ekki komast inn á skemmtistað öðruvísi en að einhver komi upp að honum og segist hafa lært hjá honum. "Það hefur samt enginn skammað mig, aldrei nokkurn tíma," segir hann hlæjandi. Heiðar segir fyrstu dansskólana ekki hafa hafið starfsemi fyrr en fyrir fimmtíu árum. "Danskennsla var þá bara í smáum stíl og engin úti á landi," segir hann. Hann segir einnig að mikið hafi breyst í dansheiminum á þessum tíma. "Reykjavík hefur breyst mikið á fimmtíu árum, en Dómkirkjan er enn á sínum stað. Þetta er eins í dansinum," segir Heiðar, "hann hefur breyst mikið, en það eru alltaf fastir punktar." Ein af nýjungunum var Cha cha cha, en sá dans leit dagsins ljós í kringum 1956. "Nú er Cha cha cha orðinn einn af risum dansins," segir Heiðar, en hann hefur einnig orðið vitni að þróun dansins utan dansskólanna. "Í fyrravetur fór ég út með nokkrum danskennurum til að sjá hvað væri í gangi í dansi. Við kíktum inn á pöbb með óvenjustóru dansgólfi og hljómsveit að spila ofboðslega hátt. Þetta var í fyrsta sinn á ævinni sem ég sá nokkuð þessu líkt; fólk hoppaði bara, ekkert hliðar kross að sjá einu sinni," segir Heiðar. Dansskólinn býður upp á kennslu fyrir börn, unglinga og fullorðna, en Heiðar segir mikla aðsókn vera í fullorðinskennsluna. Hann segist samt hafa fundið fyrir því að áhugi á dansi hafi farið dalandi. "Áður fyrr fór fólk út til að dansa, ekki til að drekka og tala." Salsakennarar dansskólans fóru fimm ferðir til Kúbu á síðasta ári og segir Heiðar alla Kúbverja dansa. Hann harmar að íslenskir karlmenn vilji frekar hlaupa á eftir bolta, því fyrir utan að vera holl og góð íþrótt telur Heiðar dansinn vera innri þörf allra manna. "Það eru fyrst og fremst stúlkur sem stunda dansskólana, enda eru þær almennt talið betur gefnar," segir Heiðar og skellir upp úr. Hauststarfsemi skólans hefst í næstu viku.
Menning Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Fleiri fréttir Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Sjá meira