Vetrarstarfið innan um vinnupalla 26. ágúst 2006 09:00 Innrammað þjóðleikhús Miklar endurbætur standa nú yfir á Þjóðleikhúsinu, en þar má leikhúsáhugafólk eiga von á spennandi vetri. MYND/Pjetur
Þjóðleikhúsið hefur eftir helgina vetrarstarf sitt, pakkað inn í vinnupalla. Ágangur á ytra borð hússins hefur þó ekki slævandi áhrif á það sem gerist innan veggja þess og er verkefnaskrá Þjóðleikhússin fyrir næsta starfsár prýdd spennandi verkefnum. Tíu leikverk verða frumflutt á Íslandi í vetur og eru í þeim hópi bæði splunkuný íslensk og erlend verk, ásamt gríska harmleiknum Bakkynjur eftir Evrípídes sem verður frumsýndur á Stóra sviðinu um jólin. Fyrsta frumsýning vetrarins er leikritið Sitji guðs englar, eftir barnabókum Guðrúnar Helgadóttur Sitji guðs englar, Saman í hring og Sænginni yfir minni. Leikgerðin er Illuga Jökulssonar, söngtextar eftir Þórarinn Eldjárn og Sigurður Sigurjónsson leikstýrir. Sitji guðs englar er frumsýnt 29. september og viku seinna hefjast sýningar í nýju brúðuleikhúsi í húsnæði Litla sviðisins. Versta söngkona allra tíma, Florence Foster Jenkins, verður í aðahlutverki á Stóra sviðinu í lok október þegar frumsýndur verður grátbroslegur gamanleikur um ævi hennar sem hefur fengið nafnið Stórfengleg. Eftir jólin er komið að frumsýningu vísindasöngleiks Hugleiks Dagsonar, Leg, og Hjónabandsglæpum Eric-Emmanuel Schmitt. Í Kassanum verður fyrsta frumsýningin í janúar þar sem spennuverk Jacob Hirdwall, Pleasure Island - Ókannaða landið, er sett upp í leikstjórn Maríu Ellingsen. Í apríl er svo Hálsfesti Helenu, eftir eitt fremsta nútímaleikskáld Kanadabúa, Carole Fréchette, frumsýnd í Kassanum. Fleiri spennandi verk eru á dagskrá Þjóðleikhússins á næsta starfsári. Starfsmenn og leikarar koma til starfa næsta mánudag og verður þá ný heimasíða leikhússins tekin í notkun.
Menning Mest lesið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Hvað hafa þau að fela? Lífið Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni Lífið Geralt fær nýtt ævintýri rúmum áratug eftir það síðasta Leikjavísir Hver prjónuð peysa sendi skýr skilaboð til þolenda ofbeldis Tíska og hönnun Emily in Paris-stjarna látin Lífið Fleiri fréttir Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum Sjá meira