Dansandi á ösku daganna 24. ágúst 2006 09:30 Sigurður Harðarson gefur út bók um byltingarhugmyndir og andspyrnusagnfræði. MYND/GVA
Sigurður Harðarsson, þýðandi, útgefandi, hjúkrunarfræðingur og einn þekktasti anarkisti íslensku þjóðarinnar, segir að byltingin byrji í bakgarði hvers og eins. Ritið „Dansað á ösku daganna" er yfirlýst sjálfshjálparbók fyrir þá sem eru nógu raunsæir til að krefjast hins ómögulega. Flestir þekkja forleggjarann betur sem Sigga pönk en hann hóf hugsjónastarf sitt í bókaútgáfu fyrir þremur árum. „Þetta byrjaði með dreifingu, ég fékk ýmiss konar anarkista- og pönktímarit að utan og dreifði þeim og seldi á tónleikum. Ég safnaði eintökum fyrir sjálfan mig og stofnaði síðan bókasafn fyrir ári síðan sem nú er staðsett í Friðarhúsinu við Snorrabraut og í Kaffi Hljómalind," útskýrir Sigurður. „Svo fór ég að vera með eigin bæklinga, keypti mér ljósritunarvél og loks færði ég mig upp á skaftið og hóf að þýða bækur og nú hef ég gefið út eitt smárit, ritgerðina „Um anarkisma" sem kom út í fyrra og nú þessa bók." Sigurður útskýrir að bókin sé byggð á velþekktri neðanjarðarklassík, Days of War, Nights of Love, sem kom út fyrir um fimm árum síðan. „Þetta er svona skemmtilega hrokafull og rómantísk bók um byltingarpælingar, með gagnrýni á það hvernig við lifum í okkar vestræna samfélagi. Ég þýddi megnið af bókinni með góðri aðstoð en breytti henni líka," segir Sigurður en ritið er nú aðlagað að íslenskum aðstæðum. „Ég breytti henni til að hún hefði meira notagildi hér. Þetta er bók sem veitir innblástur, svo að fólk sjái að það er hægt að lifa öðruvísi en við lifum í dag." Hann segir að víða sé komið við í þessu riti. „Þar er meðal annars fjallað um hvernig mótmælahreyfingar geti breyst í nokkurs konar risaeðlur og orðið óhreyfanlegar, það er þær gera ekkert gagn nema að halda fundi fyrir sjálfar sig." Á milli kafla bókarinnar eru líka stuttar klausur úr andspyrnusagnfræði sem Sigurður bendir á að sé lítt rannsakað fræðasvið hérlendis en hann skrifar sjálfur dæmin sem tekin eru úr íslenskri andspyrnusögu. „Það hefur sitthvað verið skrifað hér á landi, eins og um atvikið þegar bændur sprengdu upp virkjunina við Laxá árið 1970. Herstöðvarandstæðingar hafa gefið út bækur um sína baráttu og það hefur verið skrifað um Helga Hóseasson en það hefur ekki verið gefin út bók sem tekur á þessu öllu saman - það væri spennandi verkefni," segir hann og áréttar að saga sú sé ef til vill auðugri en margir vilja vera að láta. Sigurður merkir mikla vakningu í samfélaginu sem hvetur til virkari þátttöku meðal borgaranna og nefnir þar til dæmis andstöðuna við Íraksstríðið, meðferð stjórnvalda á meðlimum Falun Gong og deilurnar um virkjanamál og stóriðjustefnu. Hann segir því að bókin komi út á mjög góðum tímapunkti. Bókin vísar þó ekki aðeins til andófs og andspyrnu heldur útskýrir Sigurður að titillinn skýrist af því að nauðsynlegt sé að brjóta upp hversdaginn og hugsa öðruvísi. „Þegar maður brýtur upp daglega lífið þá áttar maður sig á því að lífið er stutt, því verður bara lifað einu sinni og það er mikil synd að sóa því í kapphlaup og neysluhyggju." Hann segir enn fremur að byltingarhugmyndir verði ávallt svolítið rómantískar en sú rómantík sé innblástur. „Hver einstaklingur þarf að gera byltingu fyrir sjálfan sig og þess vegna snýst þetta ekki um að stofna til fjöldahreyfinga heldur að hver og einn átti sig á því um hvað lífið snýst og taki ákvörðun um hvort viðkomandi vilji lifa því áfram eins og það er, eða hvort hann vilji breyta einhverju." Byltingin byrjaði mjög snemma hjá Sigurði en hann rekur áhuga sinn aftur til unglingsáranna þegar hann horfði á fréttirnar og sá alltaf stríð. „Ég hugsaði hvort þetta væri eðlilegt ástand og hef verið að lesa mér til síðan ég var tólf ára. Nú er ég að verða fertugur en er alltaf að læra meira, það er það besta - að hætta aldrei að læra og þessi bók er hluti af því ferli." Hvorki íslenska bókin né enska fyrirmyndin er gefin út undir sérstöku höfundarnafni enda útskýrir Sigurður að hún innihaldi texta sem er fyrir hvern sem er að tileinka sér eða taka. Bókin er til sölu í Hljómalind, í Hljóðhúsinu á Selfossi og í verslunum Iðu, Smekkleysu og Bóksölu stúdenta.
Menning Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Fleiri fréttir Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Sjá meira