Alcan keypti upp eina tónleika hjá Bó 20. september 2006 12:15 Hrannar Pétursson Álverið keypti upp eina tónleika hjá Björgvini Halldórssyni og Sinfóníuhljómsveit Íslands í Laugardalshöll „
Við erum bakhjarlar þessara tónleika og keyptum eina upp sem verða á laugardaginn klukkan fimm, þeir fyrstu í röð þriggja,“ útskýrir Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Alcan álversins í Straumsvík. „Björgvin er náttúrlega einn af helstu sonum Hafnafjarðar og svo skemmtilega vill til að þegar álverið hóf framleiðslu á áli árið 1969 var Björgvin kjörinn Poppstjarna Íslands,“ segir Hrannar. Öllum starfsmönnum álversins er boðið ásamt mökum auk fyrrverandi starfsmönnum og mökum þeirra á tónleika Björgvins og Sinfóníunnar en mikil eftirspurn hefur verið eftir miðum á herlegheitin og þegar verið bætt við þriðju tónleikunum sem verða á sunnudeginum. Þá var helstu viðskiptavinum Alcan einnig boðið auk helstu birgja, bæði hér heima og erlendis. Aðspurður hvort stór hópur af útlendum gestum væri væntanlegur til landsins til að berja goðið augum sagði Hrannar svo ekki vera, „Kannski tuttugu manns,“ sagði hann. Hafnfirðingar verða fjölmennir í Laugardalshöllinni á laugardaginn því þeim gafst tækifæri á að vinna sér inn miða á heimasíðu fyrirtækisins og reyndi fjöldi bæjarbúa fyrir sér og voru hinir heppnu dregnir út á föstudaginn. Hrannar sagði mætinguna hjá starfsmönnum fyrirtækisins aldrei hafa verið meiri á neinn viðburð og því greinilegt að Björgvin nýtur mikilla vinsælda meðal sveitunga sinna í álverinu. „Við höfum verið að gera ýmislegt í tilefni af fjörutíu ára afmæli okkar og það er mikill spenningur og stemning hjá starfsfólkinu,“ sagði Hrannar sem hafði þó ekki tekið frá sæti á fremsta bekk fyrir sjálfan sig. „Ég verð þarna í góðu stuði um miðjan sal.“
Menning Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Fleiri fréttir Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Sjá meira