Innlent

Tekist á um hvalveiðar

Tillaga Japana, um að leyfa aftur hvalveiðar í atvinnuskyni, var felld á laugardagskvöld á fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins sem fer nú fram í St. Kitts með eins atkvæðismun. Tvo þriðju hluta atkvæða hefði þurft til að fella bannið úr gildi.

Sjávarútvegsráðherra Bretlands, Ben Bradshaw, segist ekki skilja af hverju Japanar, Norðmenn og Íslendingar ýti á eftir því að hvalveiðar verði leyfðar að nýju og bætir við að þessi afstaða rýri verulega orðstír ríkjanna á alþjóðavettvangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×