Innlent

Sigldi úr höfn með 14 farþega

Liðlega fertugur maður hefur verið ákærður fyrir að hafa í ágúst í fyrra lagt úr höfn á haffærislausu skemmtiskipi, Söndru RE, með fjórtán farþega.

Í ákærunni kemur fram að einungis hafi verið einn fjögurra manna björgunarbátur um borð.

Landhelgisgæslan stöðvaði för skipsins þar sem það var á suðurleið skammt vestur af Viðey.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×