Innlent

274 nemendur brautskráðir

Brautskráning HR
Brautskráning HR

Háskólinn í Reykjavík brautskráði 274 nemendur síðastliðinn laugardag. Nemendurnir voru af átján brautum og úr þremur deildum. Úr lagadeild útskrifuðust 53 nemendur, úr viðskiptadeild 119 nemendur, 78 nemendur útskrifuðust úr tækni- og verkfræðideild og 24 voru brautskráðir af frumgreinasviði.

Elstu nemendurnir sem útskrifuðust voru tvær 56 ára konur með BSc-próf í lífeindafræði en sá yngsti sem útskrifaðist með þriggja ára háskólagráðu er 22 ára og útskrifaðist hann með BS próf í viðskiptafræði. Nemendur skólans eru úr 27 sveitarfélögum, flestir úr Reykjavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×