Meðalhiti gæti hækkað um 11 stig 27. janúar 2005 00:01
Gróðurhúsaáhrifin gætu valdið mun viðameiri breytingum á veðurfari og lífsskilyrðum á jörðinni en áður hefur verið talið. Ný rannsókn bendir til þess að haldi fram sem horfi, gæti meðalhiti jarðar hækkað um ellefu gráður. Hópur breskra vísindamanna birti greini í tímaritinu Nature þar sem þeir greina frá niðurstöðum viðamikilla rannsókna sem byggjast á umfangsmiklu hermilíkani í tölvu. Líkanið byggðist annars vegar á tölum um magn koltvísýrings í andrúmsloftinu fyrir iðnbyltinguna á átjándu öld og hins vegar á spám um að það magn verði tvöfalt um miðja þessa öld. Niðurstaðan er ógnvekjand. Strönd Bretlands gæti til að mynda farið á kaf og flóðið gæti sömuleiðis kaffært Lundúnaborg. Meðalhiti þar, sem og annars staðar á Norðurslóðum, gæti hækkað um heil tuttugu stig, sem þýddi meðal annars að vetur heyrði sögunni til. Meðalhitnunin yrði í kringum ellefu gráður sem vísindamenn segja engin fordæmi um í sögunni. Á krítartímabilinu var meðalhitastigið um sex stigum hærra en nú, en það var fyrir hundrað milljón árum síðan. Vísindamennirnir segja nauðsynlegt að grípa þegar til aðgerða, draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda og að ekki dugi að miða við magn þeirra í andrúmsloftinu eins og það var árið 1990. Breska ríkisstjórnin hefur þegar ákveðið að leggja áherslu á gróðurhúsaáhrifin og báráttunna gegn þeim á meðan Bretland gegnir forsæti í samtökum átta stærstu iðnríkja heims. Það mun alþjóðlegum olíurisum líka lítt og því segir í dagblaðinu Guardian í dag að stjórnvöld séu nú skotmark þrýstihópa þeirra. Bob May, forseti Royal Society, einnar af þekktari vísindastofnunum Bretlands, segir í blaðinu að olíufélög, þrýstihópar og samtök sem njóta stuðnings þeirra fjármagni starfsmenni meintra vísindastofnana á Bretlandi, sem hafi undanfarið sent frá sér skýrslur þar sem fullyrt er að koltvísýringur sé ekki ástæða gróðurhúsaáhrifa og í ofanálag séu áhrif þeirra hvergi nærri jafn mikil og margir vísindamenn vilja meira. Nefnir hann nokkur dæmi um stofnanir sem olíufélög fjármagna. Og hugsanlega gætir áhrifanna nú þegar. Í gær ræddi Tony Blair meðal annars umhverfismál og gróðurhúsaáhrifin á heimsviðskiptaráðstefnunni í Davos í Sviss, og var málflutningur hans mun mildari en áður. Fréttaskýrendur segja þó hugsanlegt að ástæðan sé sú að Blair freisti þess að fá George Bush Bandaríkjaforseta til að skrifa undir alþjóðlegt samkomulag um baráttu gegn gróðurhúsaáhrifum.
Erlent Fréttir Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Sjá meira