Sport

Stórtap hjá Haukum í Danmörku

Mynd/AntonBrink

Karlalið Hauka tapaði stórt fyrir danska liðinu Arhus GF í Meistaradeildinni í handbolta í dag 34-21, eftir að hafa verið undir 17-7 í hálfleik. Haukar þurfa því nauðsynlega á sigri að halda í síðasta leik sínum í riðlakeppninni ef þeir ætla sér að komast áfram í keppninni.

Páll Ólafsson þjálfari var afar ósáttur við leik sinna manna og sagði að nokkrir leikmenn liðsins þyrftu virkilega að fara að hugsa sinn gang, ekki síst eftir skelfilegan fyrrihálfleik.

"Leikmenn verða að fara að sýna hvað þeir geta ef ekki á illa að fara á tímabilinu," sagði Páll eftir leikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×