Sport

Fimm leikir í kvöld

Þriðja umferðin í úrvalsdeild karla í körfuknattleik hefst í kvöld með fimm leikjum. Grindavík og Hamar/Selfoss mætast í Grindavík, en bæði þessi lið hafa unnið báða leiki sína í deildinni. Njarðvíkingar eru einnig taplausir, en þeir taka á móti Haukum á heimavelli sínum.

Nýliðar Hattar taka á móti ÍR á Egilsstöðum, Fjölnir og Þór mætast í Grafarvogi og KRingar sækja Skallagrím heim í Borgarnes. Allir leikir kvöldsins hefjast klukkan 19:15.

Kvennalið Hauka verður svo í eldlínunni í Evrópukeppni kvenna í kvöld, en þær spila við Pays D´Aix í Frakklandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×