Innlent

Lýsir eftir baráttuanda

Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri og frambjóðandi til embættis varaformanns Sjálfstæðisflokksins, segist undrast hversu fáir gefi kost á sér í forystusveit flokksins og spyr hvað sé orðið um grasrótina og baráttuandann. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, sem einnig býður sig fram, sagði íslenskt samfélag einkennast af bjartsýni, og áræðni væri afrakstur pólitískra ákvarðana sem margar hverjar hefðu verið umdeildar. Kristján Þór sagði, þegar hann ávarpaði Landsfund Sjálfstæðisflokksins í dag, að í mörgum æðstu embættum flokksins væri fólk með bein eða óbein tengsl inn á Alþingi. Hann teldi það til bóta ef þar kæmu einnig við sögu einstaklingar með annan bakgrunn, til dæmis áralanga reynslu af sveitastjórnun eða atvinnulífi. Vissulega væri gott fólk í framboði en hann furðaði sig á því að einungis þrjár manneskjur skildu bjóða sig fram til embættis formanns og varaformanns. „Þarf þessi flokkur ekki á nýju blóði í forystusveitina að halda?“ spurði Kristján. Líkt og verðandi formaður Sjálfstæðisflokksins skaut Þorgerður Katrín einnig föstum skotum að Baugi og fjölmiðlum í eigu fyrirtækisins. Hún sagði það ekki mega gerast að þau öfl komist hér til valda sem gætu kippt Íslendingum aftur inn í fortíðina á örskömmum tíma. Inn í fortíð sem einkenndist af ríkisforsjá, efnahagsstjórn sem byggði á handafli og hömlulausri trú á boð og bönn sem heftu framtak einstaklinganna. „En við sjálfstæðismenn verðum að hafa hugfast að auknu frelsi fylgir aukin ábyrgð. Ábyrgð sem verður að ná til fyrirtækja og fjölmiðla. Sagan sýnir okkur að án almennra leikreglna er hætta á að markaðsráðandi aðilar misbeiti valdi sínu, hvort sem er í viðskiptum eða á fjölmiðlum. Rétt eins og frelsi er afl framfara, er einokun það mein sem forðast verður,“ sagði Þorgerður Katrín.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×