Hreyfilistaverk frumsýnt í húsi OR 17. apríl 2005 00:01
Þvottavélatromlur, keilur, GSM-símar, steinull, svampur, klósettpappír og reiðhjólagjarðir voru meðal þess sem gekk í endurnýjun lífdaga í hreyfilistaverki sem frumsýnt var í Orkuveitu Reykjavíkur í dag. Bandaríski myndlistarmaðurinn Arthur Ganson vann verkið með hópi íslenskra barna. Hann heillaðist af hugmyndaauðgi barnanna. Listamennirnir hafa unnið alla vikuna að verkinu. Það er í raun margir hlutar eða kaflar sem síðan tengjast innbyrðis. Hráefnið er úr öllum áttum en allir hlutarnir eiga það sameiginlegt að í þeim er hreyfing sem síðan kemur af stað hreyfingu í næsta hluta. Það var mikil eftirvænting þegar talið var niður. Búið var að prófa hvern hluta fyrir sig en aldrei allt verkið í heild sinni. Og allt gekk eins og í sögu. Reyndar þurfti að ýta aðeins við einstaka hlutum, en það var minni háttar. Arthur Ganson, sem vann verkið með börnunum, segist hafa verið mjög ánægðu með verkið og það hafi virkað mjög vel. Ganson segist ekki hafa haft nokkra hugmynd fyrir fram um verkið. Hugmyndaflug barnanna hafi ráðið ferðinni og þessi vika hafi verið frábær. Samstarfið og leitin að réttu lausnunum hafi gengið vel. Hann segist einnig hafa skemmt sér vel. Börnin hafi öll verið mjög áhugasöm og spennt að koma í hús Orkuveitunnar. Þau hafi alltaf mætt fyrr og fyrr með hverjum deginum sem hafi liðið. Aðspurður hvort ímyndunarafl þeirra hafi verið fjörlegt og lifandi segir Ganson svo hafa verið. Ekki hafi skort hugmyndir. Verkið var frumsýnt í dag og reyndar var þetta eina sýningin. Verkið mun engu að síður vera til sýnis næstu tvær vikurnar í höfðustöðvum Orkuveitunnar. Ganson segist reyndar hafa verið hissa því þegar börnin hafi komið fyrst. Þá hafi hann sýnt þeim eitt dæmi um hvað þau gætu gert. Innan hálftíma hafi hann heyrt hamarshögg og sagarhljóð. Það hafi aldrei verið spurt hvort hægt væri að gera eitthvað, börnin hafi bara tekið til óspilltra málanna og gert það. Það voru þeir Ásgeir, Kári, Hjörvar og Ásgeir sem bjuggu til glæsilegan lokakafla. Þeir segjast aðspurðir að hann hafi verið töluverð vinna. Arthur Ganson var svo ánægður með samstarfið við ungu íslensku listamennina að hann lýsti áhuga á að koma hingað aftur og taka þátt í frekara samstarfi.
Fréttir Innlent Mest lesið Flugmennirnir sviptir flugréttindum Innlent Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Innlent Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Innlent Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn Innlent „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Fleiri fréttir Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Málaður regnbogafáni gæti reynst of sleipur Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Fórnuðu gúmmístígvélunum við að slökkva sinueld á Ströndum Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Sjá meira