Menning

Eins og að eiga bústað í útlöndum

Það sem fyrst vekur athygli þegar komið er inn á skrifstofu Heimshornsins er stór heimskort sem teygir sig yfir gólfið. "Við erum ekki hefðbundin ferðaskrifstofa heldur erum við að kynna Íslendingum nýjan valkost, sem milljónir manna um allan heim nýta sér, "segir Þórunn Stefánsdóttir, einn eigenda Heimshornsins. "Þessi valkostur er klúbbaaðild sem veitir meðlimum aðgang að fjölbreyttri gistingu um allan heim og gististaðirnir skipta þúsundum. Hvort sem áhugamálið er golf, köfun eða listir og menning þá er hægt að bóka gistingu þar sem þetta er í boði. Þetta er nýr líffstíll sem sameinar þægindi, sveigjanleika og fjölbreytni á mjög góðu verði."

Þórunn segir að þetta sé eins og að eiga sumarbústað í útlöndum en alltaf á nýjum stað. "Fólk skráir sig hjá okkur og með því að verða klúbbaðili ertu í raun að kaupa þér gistirými fyrirfram. Félagar í klúbbnum okkar sem er alþjóðlegur og heitir Quest Vacation Club eiga gistirétt í hótelíbúðum og geta nýtt hann ár eftir ár í einhverjum þeirra fjölmörgu íbúða sem standa til boða eða á herragörðum, í höllum, húsbílum, bátum eða skemmtiferðaskipum."

Klúbbaðildin er þrenns konar og kostar mismikið eftir umfangi. Ódýrasta aðildin kostar 234.000 krónur eða 3.900 bandaríkjadali sem tryggja þá gistirétt fram í tímann eina viku annaðhvert ár næstu þrjátíu árin og svo fer verðið hækkandi eftir því hve margar vikur fólk vill

Meðlimir klúbbsins njóta vildarkjara sem aðeins bjóðast klúbbfélögum og ýmis tilboð hjá alþjóðlegum fyrirtækjum, til dæmis bílaleigum. Þórunn segir að eitt af því besta við þetta fyrirkomulag sé sveigjanleikinn. "Þig langar kannski í skíðaferð eitt árið og á sólarströnd næsta. Þú ræður hvert og hvenær þú ferð svo framarlega sem þú velur þér hótel innan keðjunnar og það er laust gistirými." Um hundrað Íslendingar eru aðilar að klúbbnum um þessar mundir og Þórunn segir að það sé hiklaust pláss fyrir fleiri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×