Innlent

Tekur nýjan fréttastjóra á teppið

Formaður Útvarpsráðs, Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, ætlar að spyrja Óðin Jónsson, nýjan fréttastjóra Útvarps hvort honum þyki "virkilega" að Útvarpið hafi staðið rétt að umfjöllun um fréttastjóramálið, sem orðið hafi til þess að Auðun Georg Ólafsson sagði sig frá starfi síðastliðinn föstudag. Gunnlaugur Sævar segist munu leggja fram þessa spurningu á næsta fundi útvarpsráðs, þar sem Óðinn verði gestur fundarins. Á fundi útvarpsráðs í gær fór fram snörp umræða um feril fréttastjóramálsins. Gunnlaugur Sævar kvaðst hafa beint því til útvarpsstjóra á fundinum að þetta mál yrði skoðað. "Það sem ég ræddi mest voru áhyggjur mínar af þessum unga manni sem fékk þessa meðferð sem hann fékk," sagði Gunnlaugur Sævar. "Ég gat þess að mér væri sama hvað þessir menn lemdu á mér, til þess væri ég þarna. En ég hlýt að gera þá kröfu til starfsmanna Ríkisútvarpsins að þeir gangi hægt um gleðinnar dyr í svona málum, þegar fólk gerir ekki annað en að óska eftir starfi við stofnunina og fá það. Ég minni á að fréttamenn eigi sífellt að vera vakandi yfir því að þeir sem hafa hag af málum séu ekki mikið með puttana í þeim." Gunnlaugur Sævar sagði að fréttamenn RÚV hefðu farið algjöru offari í málinu og viðtalið við Auðun Georg í hádegisfréttum Útvarpsins síðastliðinn föstudag hefði verið fyrir neðan allar hellur. Formaður útvarpsráðs kvaðst hafa viljað bíða með að ráða nýjan fréttastjóra Útvarps, eftir að Auðun Georg gekk úr skaftinu, þar til fjölmiðlafrumvarpið væri orðið að lögum. Sú aðferð yrði viðhöfð við ráðningu yfirmanns dagskrárgerðar í stað Jóhanns Haukssonar. Á útvarpsráðsfundinum lagði Ingvar Sverrisson fram eftirfarandi bókun fyrir hönd Samfylkingar vegna ráðningar fréttastjóra útvarps: "Fulltrúar Samfylkingarinnar í útvarpsráði lýsa yfir ánægju með niðurstöðu fréttastjóramálsins sem er í samræmi við afstöðu okkar á síðasta fundi, þar sem við lýstum þeirri skoðun okkar að velja bæri einn af þeim fimm sem hæfastir voru taldir í hópi umsækjenda.  Það hefur útvarpsstjóri að lokum gert. Að gefnu tilefni lýsum við fullu trausti á fréttastofu útvarps og starfsmenn hennar."



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×