Ráðning Auðuns Georgs

Fréttamynd

Lokaði erfiðum átján ára hring með heimsókn í Útvarpshúsið

Auðun Georg Ólafsson, sem ráðinn var fréttastjóri á RÚV árið 2005 og gegndi starfinu í einn dag, þáði boð útvarpsstjóra að kíkja í heimsókn í Útvarpshúsið í Efstaleiti í morgun. Hús sem hefur vakið hjá honum óþægilegar tilfinningar eftir mikið fjölmiðlafár í tengslum við ráðningu hans á sínum tíma. 

Innlent
Fréttamynd

Er útvarpsstjóri svona mikilvægur?

Þetta endurómar tíma þegar útvarpsstjórinn var æðstiprestur íslenskar menningar, gekk eiginlega næstur forsetanum að virðingu (og var heldur ekki ósvipuð týpa) – flutti ávarp á nýársnótt sem þjóðin hlustaði á með andakt. Hann ríkti yfir stofnun þar sem var flutt menningarefni...

Fastir pennar
Fréttamynd

Jóhann Hauksson til Fréttablaðsins

Jóhann Hauksson fyrrverandi dagskrárstjóri Rásar 2 og yfirmaður svæðisstöðva Ríkisútvarpsins hefur verið ráðinn á ritstjórn Fréttablaðsins. Jóhann mun jöfnum höndum skrifa fréttir og starfa í hádegisútvarpi Talstöðvarinnar.

Lífið
Fréttamynd

Fær ekki starfslokasamning

Útvarpið skýrði frá því í gær að Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri hefur hafnað beiðni lögmanns Auðuns Georgs Ólafssonar um viðræður um starfslokasamning við Ríkisútvarpið.

Innlent
Fréttamynd

Fréttastofa í gíslingu?

Nú þegar mesta fjaðrafokið er búið vegna ráðningar fréttastjóra Ríkisútvarps get ég ekki lengur orða bundist. Það er búið að vera með ólíkindum að fylgjast með fréttatímum ríkisfjölmiðlana.

Skoðun
Fréttamynd

Auðun Georg fær starfslokasamning

Vinna við starfslokasamning Auðuns Georgs Ólafssonar og Ríkisútvarpsins er að hefjast, að sögn Markúsar Arnar Antonssonar útvarpsstjóra. Hann kvað lögfræðing Auðuns Georgs hafa óskað viðræðna um starfslok hans.

Innlent
Fréttamynd

Skipbrot átakastjórnmálanna

Átakastjórnmál má kalla þau vinnubrögð þegar menn sem komist hafa í valdastöðu fyrir atbeina stjórnmálaflokka ákveða að fara sínu fram án tillits til sjónarmiða þess fólks sem málin varða hverju sinni, og sé almenn andstaða við einhverja tiltekna málsmeðferð skuli hún að engu höfð en málið keyrt af offorsi í gegn til þess að sýna styrk sinn í eitt skipti fyrir öll.

Fastir pennar
Fréttamynd

Útvarpsráð og -stjóri rúin trausti

Stjórmálamenn þurfa oft að þola aðgangshörku fjölmiðla í umdeildum málum. Það er hluti af þeirra starfi og þeir sem ekki þola eina og eina gusu sem þeir telja óverðskuldaða eiga einfaldlega að leita sér að rólegra starfi.

Fastir pennar
Fréttamynd

Tekur nýjan fréttastjóra á teppið

Formaður Útvarpsráðs vill svör við fréttastefnu nýs fréttastjóra Útvarps. Formaðurinn segir að hann hefði viljað að ráðningu Óðins Jónssonar hefði verið frestað. Snarpar umræður urðu um fréttastjóramálið á fundi útvarpsráðs í gær.

Innlent
Fréttamynd

Harmsaga fréttastjórans á RÚV

Það er reyndar í sjálfu sér eitt áhyggjuefnið að ráðamenn á Íslandi í byrjun 21. aldar virðast í alvöru líta svo á að þeim beri eitthvert vald yfir fréttastofum. Það er skuggalegt hugarfar en því miður þurfum við ekki að fara í neinar grafgötur um að það er staðreynd.

Skoðun
Fréttamynd

Óðinn Jónsson ráðinn fréttastjóri

Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri réð í dag Óðinn Jónsson fréttastjóra Útvarps. Þetta kom fram í fréttum Útvarps klukkan sex. Óðinn var einn fimm umsækjenda sem Bogi Ágústsson, forstöðumaður fréttasviðs, mælti með í starfið en eins og kunnugt er var Auðun Georg Ólafsson fyrst ráðinn í starfið við kröftug mótmæli starfsfólks Ríkisútvarpsins.

Innlent
Fréttamynd

Vonast til að sætta megi deilendur

Óðinn Jónsson var óvænt ráðinn fréttastjóri á fréttastofu Útvarps í dag. Hann segir vonast til að hægt verði að sætta deilendur innan Ríkisútvarpsins og um það séu þeir útvarpsstjóri sammála.

Innlent
Fréttamynd

Útvarpsráð ræðir málin á þriðjudag

Óljóst er hvernig staðið verður að ráðningu nýs fréttastjóra Útvarps eftir að Auðun Georg Ólafsson ákvað að taka ekki starfinu. Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri sagði í fréttum Stöðvar tvö í gærkvöld, eftir að fréttamaður færði honum tíðindin, að málið yrði að tekið upp á fundi útvarpsráðs næsta þriðjudag.

Innlent
Fréttamynd

Fjórir sækja líklega ekki um aftur

Fjórir af þeim fimm umsækjendum sem Bogi Ágústsson taldi hæfasta til að gegna stöðu fréttastjóra fréttastofu Ríkisútvarpsins telja ólíklegt að þeir sæki um stöðuna að nýju, verði hún auglýst. Sá fimmti var í morgun beðinn um að gegna stöðunni tímabundið eftir að Auðun Georg Ólafsson gekk úr skaftinu í gær.

Innlent
Fréttamynd

Friðrik Páll aftur fréttastjórinn

Óljóst er hver næstu skref í ráðningu fréttastjóra Ríkisútvarpsins verða. Útvarpsstjóri segir að það verði rætt í útvarpsráði. Útvarpsráð segir Markús einan um þá ákvörðun. Fyrrverandi fréttastjóri sem útvarpsráð vildi síður í starfið sest aftur við stjórnvölinn.

Innlent
Fréttamynd

Óljóst um ráðningu fréttastjóra

Óljóst er hvernig staðið verður að ráðningu nýs fréttastjóra Útvarps eftir að Auðun Georg Ólafsson ákvað að taka ekki starfinu. Auðun mætti til síns fyrsta vinnudags í gærmorgun og fékk heldur óblíðar móttökur.

Innlent
Fréttamynd

Ófremdarástand á RÚV

Þingmenn stjórnarandstöðunnar voru ósáttir í gærmorgun við að forsætisráðherra hafnaði því að ræða ráðningu nýs fréttastjóra Ríkisútvarpsins á Alþingi í gær í fjarveru menntamálaráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Fréttastjóri í einn dag

"Ég eflist við hverja raun," sagði Auðun Georg Ólafsson eftir að hafa hitt starfsmenn Ríkisútvarpsins í gærmorgun, tæpum hálfum sólarhring áður en hann tilkynnti að hann sæi sér ekki fært að taka við starfi fréttastjóra fréttastofu útvarps.

Innlent
Fréttamynd

Boðaðir á fund menntanefndar

Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri og útvarpsráð Ríkisútvarpsins verða kallaðir á fund menntamálanefndar til að ræða stöðuna í útvarpinu í kjölfar fréttastjóramálsins. Gunnar I. Birgisson, formann nefndarinnar, og Mörð Árnason, fulltrúa Samfylkingar, greinir á um alvarleika málsins.

Innlent
Fréttamynd

Markús hlýtur að hugsa sinn gang

Formaður Blaðamannafélags Íslands, Róbert Marshall, telur að Markús Örn Antonsson, útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins, hljóti að hugsa sinn gang nú þegar Auðun Georg Ólafsson hafi ákveðið að taka ekki við starfi fréttastjóra útvarpsfrétta.

Innlent
Fréttamynd

Sökuðu stjórnarflokka um valdarán

Forsætisráðherra var sagður kjarklaus og kallaður lúpa fyrir að vera ekki viðstaddur umræður um fréttastofu Útvarpsins á Alþingi í dag. Þingmenn stjórnarandstöðunnar segja ríkisstjórnarflokkana og sérlega spunakarla forsætisráðherra reyna valdarán á fréttastofunni. Forsætisráðherra sagðist ekki ætla að hafa afskipti af málinu.

Innlent
Fréttamynd

Kröfu um utandagskrárumræðu hafnað

Forseti Alþingis hafnaði kröfu Kolbrúnar Halldórsdóttur, vinstri - grænum, um utandagskrárumræðu um ástandið á fréttastofu Útvarps skömmu áður en þingfundur hófst klukkan hálftvö. Ákveðið var á fundi með formönnum þingflokka að umræðan færi fram þegar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir væri komin frá útlöndum.

Innlent
Fréttamynd

Þorgerður lætur Markús um málið

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra sagði áður en Auðun Georg Ólafsson hætti við að taka við starfi fréttastjóra hjá Ríkisútvarpinu að hún ætlaði ekki að skipta sér ekki að starfsmannaráðningum Ríkisútvarpsins. Hún sagði það alveg á hreinu.

Innlent
Fréttamynd

Auðun Georg sætti einelti

Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, formaður útvarpsráðs segir að ákvörðun Auðuns Georgs sé vonbrigði. "Ákvörðunin er þó skiljanleg hjá þesum unga manni eftir þann hamagang og einelti sem hann hefur þurft að líða. Það er ekki í mannlegu valdi að berjast gegn ofurvaldi heillar fréttastofu sem leggur heilu fréttatímana undir sín viðbrögð."

Innlent
Fréttamynd

Menn fái umbun starfi þeir áfram

Auðun Georg Ólafsson sat ekki fréttafund með fréttamönnum á fréttastofu Útvarps klukkan hálfníu. Hann hitti hins vegar fréttamenn klukkan hálftíu til að gera grein fyrir stöðu mála. Þar sagði hann að hann skildi að þeir sem ekki treystu honum vildu hætta störfum en bauðst til að gera vel við þá sem vildu verða áfram.

Innlent
Fréttamynd

Auðun Georg hættur við

Auðun Georg Ólafsson hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann lýsir því yfir að hann sjái sér ekki fært að þiggja starf fréttastjóra á fréttastofu Útvarps. Yfirlýsing hans er svohljóðandi:

Innlent
Fréttamynd

Hinn sögulegi farsi

Eflaust á Auðun Georg eftir að kynnast því að fréttastjórn á alvöru fréttastofu byggir ekki á lóðréttu boðvaldi yfirmanns yfir undirmönnum - þar gilda sjálfstæð vinnubrögð og sjálfstæð dómgreind fréttamannanna. Sá sem ekki er velkominn leiðtogi í slíkt teymi mun einfaldlega dingla í frígír á einhverju hliðarspori.

Fastir pennar
Fréttamynd

Alþingi hvatt til að taka í tauma

Stjórnarandstæðingar gagnrýndu harðlega ráðningu nýs fréttastjóra Ríkisútvarpsins í dag í umræðum um störf þingsins. Talað var um að pólitísk afskipti af stofnuninni væru meiri en tíðkaðist í nokkuru öðru vestrænu ríki. Alþingi var hvatt til að taka í taumana.

Innlent
Fréttamynd

Á ábyrgð Sjálfstæðisflokks

Sjálfstæðismenn hafa setið í menntamálaráðuneytinu undanfarin fjórtán ár og haft meira en rúman tíma til að skapa frið um umfang og rekstur Ríkisútvarpsins. Þess í stað logar stofnunin stafnanna á milli.

Fastir pennar