Sport

Bayern á höttunum eftir Huth

Uli Hoeness, framkvæmdastjóri Bayern Munchen í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, hefur staðfest að liðið ætli að ná sér í Robert Huth, varnarmann enska liðsins Chelsea. "Við höfum talað við Chelsea og umboðsmann Huth. Við munum skoða þetta mál betur þegar rétti tíminn er kominn," sagði Hoeness. Hinn 20 ára gamli Huth, sem er þýskur landsliðsmaður, er samningsbundinn Chelsea þangað til 2008.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×