Erlent

Fundu eldri forfeður manna

Fornleifafræðingar í Eþíópíu hafa fundið tólf steingervinga mannapa sem taldir eru eldri en hin fræga Lucy sem oft hefur verið nefnd formóðir manna. Steingervingarnir tólf eru taldir vera 3,8 til 4 milljóna ára gamlir, eða um 600 þúsund árum eldri en beinagrindin af áðurnefndri Lucy, sem er af ætt austurapa og fannst árið 1974, einnig í Eþíópíu. Fundur beinagrindarinnar af Lucy þótti einn sá merkilegasti í sögu fornleifafræðinnar enda var hún elsta dæmið um tvífætta mannveru sem fundist hafði. Vísindamennirnir í Eþíópíu vonast til að hin nýfundnu bein geti varpað frekara ljósi á þróun mannkyns.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×