Erlent

Fundu sprengjur og önnur vopn

Palestínska lögreglan gerði í dag upptækar sprengjur og önnur vopn í bænum Dura suður af Hebron á Vesturbakkanum. Þá voru sextán menn handteknir í áhlaupinu. Þetta er í fyrsta sinn í rúmlega fjögur ár sem lögreglan gerir slíkt en áhlaupið er liður í áformum palestínskra yfirvalda að binda enda á árásir herskárra Palestínumanna á ísraelsk skotmörk til þess að liðka um fyrir friðarumleitunum við Ísraela.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×