Innlent

Forstjóri leystur frá störfum

Forstjóri Sjóbjörgunarstöðvarinnar í Færeyjum var í gær leystur frá störfum eftir mikla gagnrýni frá þingmönnum færeyska þjóðþingsins vegna þess seinagangs er varð þegar sent var neyðarkall frá Jökulfelli. Þá liðu tæpar þrjár klukkustundir frá því að neyðarkallið barst þangað til björgunarþyrla stöðvarinnar var send af stað. Var viðkvæðið það að ónógar upplýsingar hefðu borist til að réttlæta að senda þyrluna af stað en ekki var loku heldur skotið fyrir að mistök hefðu átt sér stað. Fimm manns björguðust þegar skipið fórst en sex skipverjar létu lífið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×