Gönguferð í næturfrosti 3. mars 2005 00:01
Flosi Eiríksson fór í gönguferð um hálendið. Með í för voru tveir góðir vinir. Flosi Eiríksson gengur vel og finnst það gaman. Hann fór í eftirminnilega gönguferð í haust, nokkru eftir að hefðbundnu sumri var lokið. "Ég fór með tveimur vinum mínum, Hjörleifi Finnssyni og Kristjáni Benjamínssyni, alræmdum björgunarsveitarmönnum og fjallagörpum. Við vorum keyrðir inn á Sprengisand og óðum þar yfir þjórsárkvíslar og yfir að Arnarfelli hinu mikla sem er innst á Gnúpverjaafrétti. Þar er ofboðslega magnað að vera á þessum árstíma, í öllum haustlitunum og hvönninni. Svo gengum við í Þjórsárverunum og fram hjá Nautöldu og niður að Þjórsá og gengum svo niður með henni og niður í kofa en þangað vorum við svo sóttir. Þetta var frábær árstími til að fara í svona göngu, orðið svartamyrkur á nóttinni og komið örlítið næturfrost. En það kom nú ekkert að sök. Við gistum í tjaldi og vorum fjóra daga á leiðinni." Flosi hefur farið í svipaðar ferðir áður og finnst það mjög gaman. "Við fórum tveir einu sinni í gönguferð um Hornstrandir, gengum úr Ófeigsfirði og norður í Hlöðuvík og svo hef ég gengið í gegnum Flosaskarð og kringum Eiríksjökul. Vinir mínir eru mjög duglegir við þetta og þeir taka mig stundum með," segir Flosi og glottir. "Það gerist æ sjaldnar í seinni tíð og reyndar alveg ótrúlegt hversu margar góðar helgar maður þarf að vera á fundi í bænum. En það er líka nauðsynlegt,"segir Flosi og við vonum að hann fái fleiri tækifæri til að komast á fjöll þegar tekur að vora.Flosi, Hjörleifur Finnsson og Kristján Benjamínsson æja ögn.
Ferðalög Mest lesið Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið HAM boða endalok alls Tónlist Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira