Erlent

Með einkarétt á fetaosti

 

Hvað er „feta"? Ostur, en meira en það. Evrópudómstóllinn úrskurðaði í dag að feta væri nánar til tekið saltur, grískur ostur gerður úr blöndu af kúa- og geitamjólk. Grikkir hafa búið til feta í næstum sex þúsund ár og vildu einkarétt á nafninu, sem Danir og Þjóðverjar vildu ekki samþykkja. Dómstóllinn úrskurðaðir að aðeins gríski osturinn væri raunverulegur fetaostur, þar sem kýrnar og geiturnar væru af sérstökum stofnum og gríski gróðurinn sem þær nærðust á gæfi ostinum einkennisbragðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×