Nýr þáttur í bígerð 9. desember 2005 07:00 Sigríður Arnardóttir. Ferðin til Kenía var Sirrý minnistæð en þátturinn hennar Fólk tók þátt í vel heppnaðri söfnun á vegum UNICEF.
Fólk með Sirrý hefur undanfarin fimm ár verið einhver allra vinsælasti spjallþáttur í íslensku sjónvarpi. Núna finnst þáttastjórnandanum, Sigríði Arnardóttur, vera orðið tímabært að breyta til en síðasti Fólk-þátturinn fer í loftið 21. desember. "Ég trúi á fimm ára tímabil og að maður eigi að hætta á toppnum," segir Sirrý sem hafði þá nýlega sloppið undan slagveðrinu í Reykjavík og sat hólpin í húsnæði Skjás eins. "Sjónvarpsstöðin er búin að biðja mig um að hanna nýja þætti og sjálf hef ég gengið með hugmynd að einhverju öðru í tvö ár," útskýrir hún en vill þó ekkert gefa upp hvað það sé. Á fjölmiðlamarkaði séu hugmyndir gull og hún liggi á þeim eins og ormur. "Samningaviðræður eru á viðkvæmu stigi." Fólk með Sirrý hefur lengi verið eitt af flaggskipum Skjás eins og verið líkt við þátt Opruh Winfrey. Sirrý þykir vænt um þann samanburð og segir jafnframt að fjórar Eddu-tilnefningar sem þátturinn hafi hlotið séu sönnur á því að verið var að gera rétt. Þátturinn hefur þó aldrei hlotið þá ágætu styttu en Sirrý grætur það þurrum tárum. Hún segir að það sé margt sem standi upp úr á þessum fimm árum og hún eigi erfitt með að taka eitthvað eitt út. Hún getur þó ekki komist hjá því að nefna ferð sem þátturinn fór til Kenía í samstarfi við UNICEF. "Það var frábært að fá síðan að taka þátt í vel heppnaðri söfnun á vegum samtakanna," bætir hún við. "Ég hef fengið allar stéttir í sófann til mín. Það hefur bæði verið fólk í gleði og sorg," útskýrir hún og bætir við að það hafi verið henni ómetanlegt að finna það traust sem áhorfendur og gestir hafi sýnt henni. Sigríður hefur fengið hrós fyrir nálgun sína á erfiðum viðfangsefnum og henni hefur ekki verið neitt mannlegt óviðkomandi. Hún segir að þátturinn hafi verið frábær skóli. "Ég lifi mig mikið inn í hann og hef lært mjög mikið af þeim gestum sem hafa komið." Sirrý tekur þó fram að ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvernig síðasta þættinum verði háttað því tveir valmöguleikar séu í stöðunni. "Annað hvort verður þetta hreinræktaður jólaþáttur eða við horfum um öxl og lítum yfir farinn veg. Báðir valkostirnir eru mjög góðir."
Menning Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Lífið Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Lífið samstarf Fleiri fréttir Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Sjá meira