Mikil gleði í Danmörku vegna prins 15. október 2005 00:01
Mikil gleði ríkir í Danmörku vegna fæðingar litla prinsins í nótt. Krónprinsaparið Friðrik og María eignaðist 14 marka son sem var 51 sentímetri. 37 ára er krónprins Friðrik orðin faðir í fyrsta sinn. Hin ástralska eiginkona hans María, sem er 33 ára, fæddi heilbrigðan son í nótt, þegar klukkuna vantaði þrjár mínútur í tvö að dönskum tíma. Fæðingin fór fram á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn og tók um 10 klukkustundir. Danir sofnuðu þó spenntir því í gærkvöldi bárust fréttir af því að María prinsessa væri komin á sjúkrahúsið, þótt ekki væri staðfest að fæðingin væri farin af stað. Fulltrúar danskra fjölmiðla biðu spenntir fyrir utan Ríkisspítalann í alla nótt og aukafréttatímar hafa verið í sjónvarpi í morgun. Á blaðamannafundi í anddyri sjúkrahússins í morgun sagði prins Friðrik tilfinningar þeirra hjóna ólýsanlegar og viðurkenndi að hann hefði fellt tár með þeim orðum að á svona stundu ætti maður ekki að leika Súpermann. Drottningin hefur heimsótt fjölskylduna á spítalann og nú í hádeginu var skotið 21 fallbyssuskoti til heiðurs nýfædda prinsinum. Danska þjóðin getur sem dæmi nýtt tæknina til að senda heillaóskir í gegnum SMS-þjónustur og rúlla kveðjurnar stanslaust yfir borða sjónvarpsstöðvarinnar TV2. Tekið verður á móti gjöfum frá almenningi í Amalíuborgarhöllinni í Kaupmannahöfn í dag og á morgun. Klukkan hálfsjö að dönskum tíma verða tendraðir 200 bálkestir um alla Danmörku til að fagna fæðingu litla prinsins, en sérfræðingar veðja á að eitt fjögurra nafna hans verði Kristján samkvæmt hefðinni. Litli prinsinn er þriðja barnabarn Margrétar drottningar og prins Hinriks, en fyrir eiga hin nýskildu Jóakim og Alexandra tvo drengi.
Erlent Fréttir Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september Sjá meira