Erlent

Lögsóknir vegna fuglaflensulyfs

Framleiðsla flensulyfjanna Tamiflu og Relenza kemur hugsanlega til með að verða fyrir röskun þar sem nú standa yfir málaferli milli einkaleyfishafa og fyritækja sem eru með framleiðsluréttinn. Framleiðendur flensulyfjanna Tamiflu og Relenza, sem notuð hafa verið við fuglaflensunni standa nú fammi fyrir lögfræðibaráttu við fyrirtækin sem þróuðu lyfin og seldu þeim framleiðsluréttinn. Fyrirtækin sem um ræðir eru GlaxoSmithKline og Roche Holding en þau hafa verið lögsótt af þróunaraðilum og einkaleyfishöfum lyfjanna Gilead og Biota. Fyrirtækin byggja málssókn sína á því að framleiendur hafi ekki staðið við samninga varðandi markaðssetningu og því hafi þau tapað umtalsverðum fjárhæðum. Málið gegn GlaxoSmithKline, framleiðanda innöndunarlyfsins Relenza var höfðað í fyrra en gegn Roche sem framleiðir Tamiflu nú nýverið og málssóknin byggir einnig á því að Roche hafi ekki framleitt nóg eftir að ljóst var að eftirspurn jókst verulega. Sala lyfjanna hefur, með tilkomu fuglaflensunnar, rokið upp og flest ríki eiga einhverjar birgðir af lyfinu og einnig er umtalsverð lyfjasöfnun fyrirsjáanleg. Þessi lyf mynda þann neyðarlager sem sóttvarnarlæknir sagði að til væru í landinu og nægðu fyrir einn þriðja hluta þjóðarinnar. Fyrirtækin segjast þó ekki ætla að stofna framleiðslunni í hættu með málsókninni þar sem verulega vantar á nægar birgðir séu til í heiminum, en ekki kemur fram hvernig þeir ætla að tryggja framleiðslu lyfsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×