400 þúsund hermenn á götum úti 14. desember 2005 18:34
Nærri fjögur hundruð þúsund manna lið lögreglu og hers verður til taks í Írak á morgun, þegar kosið verður til þings í landinu í fyrsta sinn síðan Saddam Hússein var steypt af stóli. Landamæralögreglan í Írak lagði í gær hald á fimm þúsund falsaða kosningaseðla sem reynt var að flytja til landsins í vöruflutningabíl frá Íran. Það hefur verið hljóðlátt á götum höfuðborgarinnar Baghdad í morgun. Fyrir utan einstaka sírenuvæl og byssugelt ríkir þögnin ein. Landamærum og flugvöllum í landinu hefur verið lokað og útgöngubann hefur verið í gildi í höfuðborginni í dag. Þegar er búið að snarherða öryggisgæslu um allt land fyrir kosningarnar, en enn sem komið er hefur róstur í aðdraganda þeirra verið minni en búist var við. Þó létust tveir lögreglumenn í morgun, þegar bílsprengja sprakk í borginni Mósúl og uppreisnarmenn skutu á fjóra kjörstaði í borginni Fallujah , en engan sakaði. Á morgun verða tvö hundruð tuttugu og fimm þúsund írakskir lögreglu- og hermenn á vakt og eiga þeir að sjá til þess að íbúar landsins geti kosið án þess að eiga á hættu að verða fyrir árásum uppreisnarmanna. Meira en hundrað og fimmtíu þúsund bandarískir hermenn munu aðstoða þá við verkið. Þetta er einhver víðtækasta öryggisgæsla sem sögur fara af. Dagblaðið New York Times greinir frá því í dag að írakska lögreglan hafi lagt hald á fimmtán þúsund falsaða kjörseðla við landamæri Írans. Seðlarnir voru í flutningabíl og búið var að fylla flesta þeirra út. Bílstjórinn viðurkenndi við yfirheyrslur að minnst þrír aðrir flutningabílar hefðu komist yfir landamærin með álíka magn af fölsuðum seðlum. Íranar hafa legið undir ámæli fyrir að reyna að hafa áhrif á úrslit kosninganna í Írak og ljóst er að þessi uppákoma mun ekki draga úr þeim ásökunum. Fimmtán milljónir Íraka eru á kjörskrá og stjórnvöld vonast til að kjörsókn verði góð. Einkum eru vonir bundnar við að súnnítar flykkist á kjörstaði, en þeir sniðgengu að mestu kosningar um stjórnarskrá landsins.
Erlent Fréttir Mest lesið „Fyrir mér ert þú óheiðarlegt úrhrak“ Innlent Dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir banaslysið á Sæbraut Innlent „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Erlent Gera alvarlega athugasemd við niðurrif á Sæbraut Innlent Nýr íþróttavöllur vekur athygli í fámennri sveit Innlent „Mun skynsamlegri leið en að hækka skatta og gjöld“ Innlent Vilja að konur uppfylli sinn æðsta tilgang: að verða mæður Innlent Þurfi að finna Kaffistofunni nýjan og góðan stað Innlent „Svona getur þetta ekki gengið lengur“ Innlent Tónleikasvæðið á Þingvöllum fyrir og eftir: Eins og „góð mosatæting“ Innlent Fleiri fréttir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Sjá meira