Jeppi á þjóðvegi og fjöll 24. maí 2005 00:01
Nýr Nissan Pathfinder var kynntur hjá Ingvari Helgasyni fyrir skömmu. Pathfinderinn tekur við af Terrano II sem aftur tók við af gamla Pathfindernum um miðjan síðasta áratug. Pathfinder er jeppi af millistærð, á Patrolinn fyrir stóra bróður en er til muna stærri og öflugri en þeir bílar sem í daglegu tali eru kallaðir jepplingar. Nissan Pathfinder er afar vel búinn bíll, ekki síst þegar komið er upp fyrir grunnútfærslu (XE). Meðal skemmtilegs búnaðar í bílnum má nefna áttavita í baksýnisspegli regnskynjara (SE), loftkælingu í aftursæti og minni í sæti og speglum (LE) og bakkmyndavél (IT pakki). Reynsluekinn var Nissan Pathfinder LE IT. Í þeim bíl eru til dæmis leðursæti, skynvæddur lykill, topplúga og leiðsögukerfi með litaskjá en sá búnaður nýtist ekki nema farið sé til Evrópu, að minnsta kosti ekki að sinni. Bíllinn er þægilegur í allri umgengni. Hann er vel búinn geymsluhólfum og glasahöldurum sem er hlutur sem ekki skyldi vanmeta í ferðabíl. Skottið er aðgengilegt og rúmgott og þriðja sætaröðin jafnast alveg við gólf, sé hún ekki í notkun. Miðstöðin er tvískipt þannig að farþegi getur kosið annað hitastig en bílstjóri, auk þess sem aftursætisfarþegar geta sjálfir stýrt hitastigi hjá sér. Allt þetta hjálpar til við að gera Nissan Pathfinder að þeim góða ferðabíl sem hann er. Bíllinn var hinn ljúfasti í meðförum og öll þægindi og búnaður framúrskarandi. Nissan Pathfinder er fyrsta flokks ferðabíll. Ekki má á milli sjá hvort hann nýtur sín betur á malbiki þar sem hann steinliggur, á malarvegi þar sem ökumaður finnur vel fyrir því að vera á stöðugu og öruggu ökutæki eða á grófum vegi þar jeppaeiginleikarnir njóta sín. Þessir góðu eiginleikar eru þó ögn á kostnað lipurleika sem margir leggja upp úr í innanbæjarakstri. Nissan Pathfinder er því bíll sem hentar þeim best sem leggja meira upp úr góðum eiginleikum ferðabíls en lipurs innanbæjarbíls.
Bílar Mest lesið Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Lífið Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Lífið Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Lífið 50+: Er ég að verða heyrnarlaus eða eru allir farnir að öskra? Áskorun Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Áskorun Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun Fleiri fréttir Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira