Innlent

Tveir metanflutningabílar á götuna

Fyrstu „fullvaxtar“, metanknúnu farartækin á landinu voru tekin í notkun í dag þegar tveir flutningabílar voru afhentir eigendum sínum. Þá eru metanbílar á landinu orðnir fjörutíu og átta og mun þeim fjölga enn frekar í lok sumars. Strætó hyggst taka í notkun tvo metanknúna strætisvagna og Reykjavíkurborg sorpbíl knúinn metani. Um leið og þeir koma á götuna hefur metannotkun tífaldast frá því að fyrstu metanbílarnir voru teknir í notkun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×