Níu báta fækkun á tveimur árum 9. desember 2005 06:00
Sú var tíðin að útgerð og fiskverkun var blómleg á Stöðvarfirði. Nú er aðeins ein lítil fiskverkun eftir; Skútuklöpp í eigu þeirra Guðna Brynjars Ársælssonar, Páls Óskarssonar, Grétars Arnþórssonar og útgerðarinnar Lukku ehf. Skútuklöpp er fimm ára gamalt fyrirtæki, saltaði lengst af fisk og stundar tilraunaeldi á þorski. Nú er saltfiskverkunin að mestu fyrir bí, vegna gengismála. "Það er ekkert upp úr þessari verkun að hafa lengur," segir Páll Óskarsson og dæsir. Nú snýst þetta að mestu um þjónustu við báta og fiskmarkað; tveir bátar leggja upp hjá Skútuklöpp eins og er og fiska alveg þokkalega. Það kynduga við þennan rekstur er að eigendurnir búa allir á Fáskrúðsfirði og aka daglega þessa 25 kílómetra sem eru milli byggðarlaganna. "Þegar við byrjuðum árið 2000 á Fáskrúðsfirði kom eiginlega allur fiskurinn héðan," útskýrir Páll og hlær, "og þegar Stöðvarfjörður fékk úthlutað byggðakvóta 2001 fluttum við alla vinnsluna hingað." Síðan hefur reksturinn heldur dregist saman og þeir þurft að fækka fólki; eru sjö í kringum þetta núna en voru tíu þegar best lét. Og sem dæmi um þann samdrátt í sjávarútvegi sem staður eins og Stöðvarfjörður hefur mátt horfa upp á, nefnir Páll að fyrir tveimur árum lögðu ellefu bátar upp á staðnum en eru nú bara tveir eins og áður er getið. Hann er þó ekkert að berja sér; er bjartsýnn á að Skútuklöpp haldi velli. "Þetta rekur sig," segir hann og hlær góðlátlega.
Innlent Menning Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Sjá meira