Kafar í söguna 9. desember 2005 07:45 Valgarður Stefánsson hefur grafið ýmislegt upp um sögu myndlistar á Akureyri. "
Þetta er mitt framlag til íslenskrar myndlistarsögu," segir Valgarður Stefánsson um bók sem hann sendi nýlega frá sér um sögu myndlistar á Akureyri. Bók Valgarðs heitir Myndlist á Akureyri að fornu og nýju og er gefin út af bókaútgáfunni Hólum. Hún er ríkulega myndskreytt og dregur fram í dagsljósið ýmsa myndlistarmenn sem lítið hefur farið fyrir í myndlistarsögu hér á landi. "Ég byrjaði eiginlega að safna heimildum í þessa bók fyrir fjörutíu árum. Þá fór ég á bókasafn og leitaði í blöðum að umsögnum um allar sýningar sem höfðu verið haldnar. Þá strax bjó ég mér til úrklippubók og hef síðan verið að klippa úr blöðum allar götur síðan." Hann segist reyndar í upphafi hafa notað þessar heimildir sínar í áróðursskyni, eins og hann orðar það, því á árunum upp úr 1970 stóð hann ásamt fleiri myndlistarmönnum á Akureyri í baráttu fyrir því að þar yrði komið upp almennilegri sýningaraðstöðu. "Akureyringar voru lengi vel voðalega rígbundnir við natúralismann og landslagsmyndirnar og kölluðu allt annað bara arg og garg. Klessumálarar, eins og þeir voru kallaðir, voru ekkert velkomnir hérna." Valgarður rekur sögu myndlistar á Akureyri allt aftur til átjándu aldar, en fyrsta málverkasýningin var hins vegar ekki haldin á Akureyri fyrr en árið 1903. Hann segir sögu myndlistar á Akureyri hafa verið býsna gloppótta undanfarna öld. "Stundum voru ekki haldnar sýningar árum og áratugum saman. Árið 1948 var síðan stofnaður myndlistarskóli á Akureyri þegar um þrjátíu manna hópur fékk til sín tvo kennara. Sá skóli starfaði tvo vetur en það var upphafið að mörgu sem hefur verið að gerast síðan, því ennþá eru menn sem gengu í þennan skóla að sýna hér á Akureyri."
Menning Mest lesið Mikil sorg á Alþingi Lífið Hvað hafa þau að fela? Lífið „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Lífið Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Tónlist Samstarfsfélagar að elskhugum Lífið Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi Lífið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Snúa aftur á byrjunarreit: „Það þekkir enginn rassinn á mér eins vel og Addi“ Tónlist Fleiri fréttir Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Mikil sorg á Alþingi Samstarfsfélagar að elskhugum Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Sjá meira