Ýmist lífs eða liðinn 9. nóvember 2004 00:01
Jasser Arafat er ekki látinn að sögn utanríkisráðherra heimastjórnar Palestínu. Ónafngreindur heimildamaður innan heimastjórnarinnar sagði fyrr í dag að hann væri fallinn frá en því var vísað á bug síðdegis. Arafat er talinn eiga fáar klukkustundir eftir ólifaðar. Læknar á sjúkrahúsinu sem Jasser Arafat, forseti Palestínu, var fluttur á í París frá Ramallah, 29. október síðastliðinn, greindu frá því strax í morgun að heilsu hans hefði hrakað verulega. Hann var sagður í djúpu dái og talið að hann ætti einungis fáar klukkustundir eftir ólifaðar. Síðdegis var haft eftir ónafngreindum fulltrúa heimastjórnar Palestínu að Arafat væri látinn af völdum heilablæðingar. Talsmaður sjúkrahússins vísaði því hins vegar á bug og á blaðamannafundi sem Nabil Shaath, utanríkisráðherra heimastjórnar Palaestínu, boðaði til síðdegis í París var staðfest að Arafat,væri enn á lífi, en hann væri mjög alvarlega veikur. Arafat, sem er 75 ára, hefur legið í dái í sex daga en heimildamaður Palestínustjórnar, sem ekki vill láta nafn síns getið, segir líklegt að menn séu að reyna að draga það eins lengi og mögulegt er að senda út tilkynningu um dauða hans. Forsætisráðherra og utanríkisráðherra heimastjórnarinnar komu, ásamt leiðtoga í Frelsishreyfingu Palestínu, til Parísar til að ráðfæra sig við lækna Arafats en heimsókn þeirra hefur verið gagnrýnd harkalega af Shúu Arafat, eiginkonu Jassies Arafats, sem sakar þá um samsæri gegn eiginmanni sínum. Einn af nánustu aðstoðarmönnum Arafats sagði í dag að þegar leiðtoginn félli frá yrði hann jarðaður við höfuðstöðvar sínar í Ramallah á Vesturbakkanum. Ísraelsk yfirvöld, sem stjórna aðgangi að svæðinu, eru mótfallin því og vilja að hann verði jarðaður á Gasa-svæðinu.
Erlent Fréttir Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira