Óvissa í Palestínu 10. nóvember 2004 00:01
Undirbúningur fyrir útför Jassers Arafats er þegar hafinn, þótt hann sé ekki enn fallinn frá. Ringulreið og óvissa ríkir í Palestínu. Ákveðið hefur verið að Rawhi Fattouh, forseti palestínska þingsins, taki tímabundið við embætti forseta heimastjórnarinnar þegar Arafat fellur frá. Undirbúningur fyrir útför Arafats er þegar hafinn og hefur verið samþykkt að hún fari fram í Kaíró. Palestínumenn vilja að leiðtoginn verði grafinn við höfuðstöðvar sínar á Vesturbakkanum en Ísraelar eru á móti því. Shaul Goldstein hjá ísraelska þinginu segir Arafat vera mesta hryðjuverkamann þessa áratugar ásamt Osama bin Laden. Síðustu fjörutíu árin hafi hann myrt þúsundir gyðinga um allan heim og sé svarinn óvinur Íraelsríkis. „Arafat er glæpamaður og það ætti að jarða hann án viðhafnar einhvers staðar langt frá Ísrael,“ Fjöldi Palestínumanna kom saman við höfuðstöðvar Arafats í Ramallah á Vesturbakkanum til að undirstrika stuðning sinn við forsetann en almenningur er reiður og veit ekki hvort Arafat er lífs eða liðinn. Nabil Shaath, utanríkisráðherra heimastjórnar Palestínu, greindi frá því síðdegis að lifur og nýru Arafats störfuðu ekki lengur. Taisser Bayoud Tamimi, íslamskur æðstiklerkur heimastjórnarinnar, sem vitjaði Arafats í París, sagði að svo lengi sem Arafat væri á lífi fengi hann nauðsynlega læknismeðferð. „Það kemur ekki til greina að taka lífbúnaðinn úr sambandi. Slíkt er bannað í íslamstrú og öllum öðrum trúarbrögðum. Þesari ákvörðun verður ekki breytt,“ sagði klerkurinn.
Erlent Fréttir Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira