Palestínumenn byrjaðir að syrgja 10. nóvember 2004 00:01
Mikil ringlureið er meðal Palestínumanna sem vita vart hvort Jasser Arafat, leiðtogi Palestínu, er lífs eða liðinn. Egyptar ætla að halda jarðarför Arafats og almenningur í Palestínu syrgir hann þegar, og þó er fullyrt að hann sé enn á lífi og í dái í París. Mjög er nú þrýst á helstu leiðtoga heimastjórnar Palestínu heimafyrir um að eyða þeirri óvissu sem ríkir um ástand Arafats en frá því í síðustu viku hafa bæði borist fréttir um andlát hans og um að hann liggi alvarlega veikur á sjúkrahúsi. Arafat, sem er 75 ára, var fluttur frá Ramallah á Vesturbakkanum á hersjúkrahús í París, 29. október síðastliðinn en læknar staðfestu í gær að blætt hefði inn á heilann í honum og hann væri í djúpu dái. Ennfremur sögðu þeir að hann ætti í mesta lagi nokkrar klukkustundir eftir ólifaðar. Í morgun var haft eftir æðstaklerki múslima á heimastjórnarsvæðunum, sem kominn er til Parísar til að vitja Arafats, að hann væri enn á lífi. Fregnir herma að klerkurinn muni leggja blessun sína yfir það að öndunarvél sem Arafat er tengdur verði tekin úr sambandi. Nabil Shaath, utanríkisráðherra heimastjórnar Palestínu, vísaði á bug öllum kjaftasögum um andlát leiðtogans í gær. Heimildir innan heimastjórnarinnar sögðu í morgun að tilkynning um andlát hans kynni að verða send út í dag og að þegar væri farið að undirbúa útför hans í Kaíró í Egyptalandi og greftrun hans við höfuðstöðvar hans í Ramallah. Arafat hefur verið leiðtogi Palestínu í meira en fjóra áratugi en helsti draumur hans hefur verið að stofna sjálfstætt ríki. Óttast margir að mikil ólga og átök verði meðal Palestínumanna við fráfall hans.
Erlent Fréttir Mest lesið Líþíumrafhlaða líkleg orsök eldsins Innlent Íslenskur farþegi í bílslysi þar sem barn lést Erlent Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Erlent Gegndarlaus áróður hafi tryggt gott gengi Ísraels Innlent Eins og að vera fangi í eigin líkama Innlent Gullfallegt fley Getty-kóngsins við Reykjavíkurhöfn Innlent Hundur drapst af völdum hitaslags á höfuðborgarsvæðinu Innlent Segja kristnar kirkjur ekki geta staðið hjá Innlent Grunaðir um að neyða pilt upp í bíl og gefa honum rafstuð Innlent Þegar Þorvaldur í Síld og fisk varð örlagavaldur Loftleiða Innlent Fleiri fréttir Íslenskur farþegi í bílslysi þar sem barn lést Rúmenar ganga aftur að kjörborðinu Leó orðinn páfi Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Ætlar að tala við Pútín um að „binda enda á blóðbaðið“ Fimm látnir eftir þyrluslys í Finnlandi Tugir látnir eftir hvirfilbyl í Bandaríkjunum Árásirnar sagðar þær umfangsmestu síðan viðræðurnar fóru fyrir bí Níu drepnir í drónaárás á rútu Samþykktu fangaskipti á næstu dögum Hlýtur 25 ára dóm fyrir banatilræðið við Rushdie Gerðu umfangsmiklar árásir á Jemen Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Diplómatinn sem grunaður var um njósnir er látinn Sakaður um að kalla eftir dauða Trumps með mynd af skeljum „Rússland vill augljóslega stríð“ Rekja fjöldamorðið í Örebro til gremju byssumannsins vegna lífs síns Íhuga að refsa Pakistönum með stíflum og fráveituskurðum Litlar væntingar til fyrstu beinu friðarviðræðnanna í meira en þrjú ár Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Tekið tíma að bera kennsl á illa farin lík Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy „Við getum ekki hlaupið um heiminn í leit að Pútín“ Undirbúa að verja mun meira til varnarmála Hnattræn hlýnun nær í skottið á einni af perlum Patagóníu ESB tapar máli um samskipti von der Leyen og Pfizer-forstjóra Vill gera Gasa að „frelsissvæði“ Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Sjá meira