Óttaðist ekki um líf sitt 19. desember 2004 00:01
Íslenskir þingmenn voru hætt komnir þegar öryggi í flugstjórnarklefa flugvélar British Airways brann yfir. Fjármálaráðherra var í flugvélinni og fimm íslenskir þingmenn. Vélinni var lent hastarlega á fyrsta mögulega stað á Heathrow-flugvelli og sakaði engan en að sögn þingmannanna var áhöfn vélarinnar óstyrk. Vélin var að koma frá Genf. Sigurður Kári Kristjánsson var einn þeirra þingmanna sem voru um borð. Hann segist ekki hafa áttað sig á því að mikil hætta væri yfirvofandi en varð þó var við að eitthvað var að. „Öryggisráðstafanir um borð voru mun harðari. Okkur var skipað til sætis og látin gera ýmislegt sem gekk lengra en gengur og gerist venjulega,“ segir Sigurður Kári. Hann kveðst líka hafa heyrt það á flugfreyjunum. Eftir lendinguna kom svo staðfesting á því að ekki var allt með felldu. Vélinni var lent tiltölulega langt úti á flugbrautinni og þegar hún hafði stöðvað komu slökkviliðsbílar aðvífandi að sögn Sigurðar Kára. Spurður hvort hann hafi óttast um líf sitt segir þingmaðurinn svo ekki vera, enda hafi hann ekki áttað sig á alvarleika aðstæðnanna. Einhverjir farþegar sögðu að kviknað hafi í öðrum hreyflinum en Fréttablaðið greinir frá því að öryggi í flugstjórnarklefa hafi brunnið yfir. Sigurður Kári segist ekki hafa orðið var við reyk í vélinni.
Fréttir Innlent Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Sjá meira