Algjör óvissa ríkir í Úkraínu 25. nóvember 2004 00:01
Hæstiréttur Úkraínu ætlar ekki að birta niðurstöðu forsetakosninganna fyrr en hann hefur tekið fyrir áfrýjunarbeiðni Viktors Júsjenko, sem tapaði kosningunum samkvæmt niðurstöðum yfirkjörstjórnar. Júsjenko sættir sig ekki við niðurstöðuna þar sem hann segir kosningarnar hafa verið ólýðræðislegar. Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu hefur meðal annars tekið undir gagnrýni Júsjenkos. Einn af ráðgjöfum Viktors Janukovitsj, forsætisráðherra landsins, sem yfirkjörstjórnin hefur lýst sigurvegara kosninganna, segir hæstarétt ekki hafa heimild til þess að ógilda kosningarnar. Rágjafar Júsjenkos vísa því alfarið á bug. Þúsundir stuðningsmanna Júsjenkos, sem ólíkt Janukovitsj vill efla tengslin við Vesturlönd, hafa mótmælt á götum Kænugarðs og annarra borga landsins síðan á sunnudaginn. Júsjenko hefur ávarpað fjöldann og hvatt til allsherjarverkfalls verði Janukovitsj lýstur sigurvegari. Ekki er búist við að hæstiréttur Úkraínu komist að niðurstöðu fyrr en á mánudaginn. Talið er að Júsjenko muni nota tímann þangað til til að hvetja stuðningsmenn sína enn frekar til mótmæla. Allt að tvö hundruð þúsund manns hafa mótmælt á götum Kænugarðs undanfarið í miklum kulda Ráðamenn Evrópusambandsins og Bandaríkjanna hafa gagnrýnt framkvæmd kosninganna og varað við því að ef ekki verði komist að lýðræðislegri niðurstöðu kunni það að hafa afdrifaríkar afleiðingar fyrir samband Úkraínu við Vesturlönd. Rússnesk stjórnvöld hafa brugðist allt öðruvísi við. Í gærmorgun endurtók Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hamingjuóskir sínar til Janukovitsj, sem vill efla tengsl Úkraínu og Rússlands á nýjan leik eftir þrettán ára aðskilnað. Ráðgjafar Janukovitsj hafa sagst vilja ná sáttum við Júsjenko, sem hefur þvertekið fyrir nokkurs konar málamiðlun.
Erlent Fréttir Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fleiri fréttir Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Sjá meira