Mikill baráttuhugur í almenningi 25. nóvember 2004 00:01
Urður Gunnarsdóttir, talsmaður ÖSE, Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, sem starfar við kosningaeftirlit í Úkraínu, segir mikinn baráttuhug í almenningi í landinu. Hún segir ástandið í Kænugarði ótrúlega gott miðað við ólguna í landinu. Vladímír Pútín, forseti Rússlands, óskaði í morgun Viktor Janúkóvits til hamingju með sigurinn í forsetakosningunum sem fram fóru í Úkraínu á sunnudag. Háttsettur fulltrúi rússneskra stjórnvalda hafði það eftir Pútín að sigur Janúkóvits skapaði kjöraðstæður fyrir samskipti ríkjanna tveggja. Sigri Janúkóvits hefur hins vegar ekki verið tekið eins vel heima fyrir og mómæltu tugþúsundir úrslitum forsetakosninganna harðlega á götum Kænugarðs í morgun, fjórða daginn í röð. Viktor Júsjenkó, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, hefur sakað stjórnvöld um kosningasvindl og hvetur til allsherjarverkfalls í landinu til að mótmæla úrslitunum. Urður Gunnarsdóttir, talsmaður Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, hefur síðustu daga verið í Kænugarði þar sem hún starfaði meðal annars við kosnignaeftirlit. Í því felst að fylgjast með úrslitum á hverjum stað og sérstaklega utankjörfundaratkvæðum. Spurð hvernig ástandið í höfuðborginni sé núna segir Urður mikinn baráttuhug í fólkinu og stemningin sé stundum í líkingu við rokktónleika. Undir niðri kraumi þó mikil reiði í garð stjórnvalda og þegar forseti Úkraínu, Leonid Kutchma, flutti ávarp á risaskjá í miðbænum í morgun púaði fólk og lét öllum illum látum. Urður segir útilokað að spá fyrir um hvað gerist á næstu dögum. Boðað hafi verið til allsherjarverkfalls en ekkert sé farið að gerast í þeim efnum ennþá. Samkvæmt stjórnarskrá Úkraínu er ekki hægt að krefjast endurtalningar og því ómögulegt að segja til um hugsanleg endalok deilunnar.
Erlent Fréttir Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi Innlent Fleiri fréttir Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Sjá meira