Borgarastyrjöld gæti brotist út 24. nóvember 2004 00:01
Óttast er að borgarastyrjöld kunni að brjótast út í Úkraínu vegna ólgunnar sem þar er eftir forsetakosningarnar í landinu. Evrópusambandið telur að kosningasvik hafi verið framin í Úkraínu.Tugþúsundir mótmæltu úrslitum forsetakosninganna á götum Kænugarðs, höfuðborgar Úkraínu, í morgun, þriðja daginn í röð, og lýstu jafnframt yfir stuðningi við Viktor Yushchenko, leiðtoga stjórnarandstöðunnar, sem sakað hefur stjórnvöld um að hafa af sér sigurinn með kosningasvindli. Almenningur neitar að sætta sig við opinberar niðurstöður forsetakosninganna sem haldnar voru um síðustu helgi, og hafa átök brotist út í höfuðborginni þar sem mótmælendum og óeirðalögreglu hefur lent saman. Samkvæmt opinberum niðurstöðum sigraði Viktor Yanukovych forsætisráðherra í kosningunum en hann nýtur stuðnings rússneskra stjórnvalda. Leonid Kutchma, fráfarandi forseti, hefur verið sakaður um víðtæk kosningasvik en hann hafði áður lýst yfir stuðningi við forsætisráðherrann. Hann segir mótmælin í Kænugarði pólitískan farsa og hvetur deilendur til að leysa ágreininginn með friðsamlegum hætti. Óttast er að ólgan í Úkraínu kunni að leiða til borgarastyrjaldar. Áformað er að tilkynna um endanleg úrslit kosninganna síðar í dag og er búist við að átökin muni magnast í kjölfarið. Bandaríkjastjórn hefur skorað á úkraínsk stjórnvöld að viðurkenna ekki kosningaúrslitin fyrr en búið verði að rannsaka hvort kosningasvik hafi verið framin eða ekki. Fulltrúar Evrópusambandsins telja að kosningasvik hafi verið framin og vara við afleiðingunum. Javier Solana, yfirmaður utanríkismála ESB, hvatti stjórnvöld í Úkraínu í morgun til þess að fara yfir þessi mál. Hann sagði Úkraínu á krossgötum og taldi að niðurstaða forsetakosninganna gæti leitt til blóðugra átaka.
Erlent Fréttir Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Fleiri fréttir Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Sjá meira