Reiði og sorg í Írak 17. nóvember 2004 00:01
Reiði og hneykslan ríkir í Írak í kjölfar þess að sýndar voru myndir af því þegar bandarískur hermaður skaut óvopnaðan, illa slasaðan Íraka til bana í Fallujah í gær. Fimm fórust og fimmtán slösuðust í bílsprengingu í morgun. Bílsprengjan var sprengd þegar bandarísk bílalest fór framhjá á útimarkaði í borginni Baiji í morgun. Bandarísku hermennirnir brugðust við með skothríð, og er ekki ljóst hvort að einhverjir hinna föllnu urðu fyrir henni. Í Írak og Arabaheiminum öllum krauma reiði og hneykslan vegna mynda af bandarískum hermanni, sem tók óvopnaðan, illa slasaðan Íraka af lífi í Fallujah í gær. Hermaðurinn er sagður þjást að stríðsþreytu og er málið til rannsóknar. Bardagar halda áfram í Fallujah, og var sprengjum varpað á hverfi þar sem uppreisnarmenn og skæruliðar eru enn sagðir halda til. Um hundrað bandarískir hermenn hafa fallið í átökum í þessum mánuði, sem þýðir að ekki hafa fleiri fallið frá því í apríl, þegar 135 fórust. Þá eru ótaldir óbreyttir borgarar sem hafa týnt lífi, en engar upplýsingar er að fá um fjölda þeirra. Allar líkur eru á því að konan, sem írakskir hryðjuverkamenn sjást skjóta til bana á myndbandsupptöku sem send var arabískri sjónvarpsstöð í gær, sé Margaret Hassan, yfirmaður CARE-mannúðarsamtakanna í Írak. Henni var rænt í síðasta mánuði og hún meðal annars neydd til að biðja sér griða á myndbandsupptöku. Sorg ríkir í Írak vegna drápsins, en Hassan, sem var írsk, bjó þar ásamt írökskum eiginmanni sínum í þrjátíu ár. Hún var þekkt fyrir starf að mannúðarmálum og helgaði líf sitt íröksku þjóðinni. Meðal þeirra sem syrgja Hassan, eru sjúklingar á einu meginsjúkrahúsinu í Bagdad, sem nutu góðs af starfi hennar. CARE-samtökin hafa nú hætt öllu starfi í Írak.
Erlent Fréttir Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira