Innlent

Maitsland-bræður dæmdir í fangelsi

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Rúnar Ben Maitsland í fimm ára fangelsi og tvíburabróður hans, Davíð Ben Maitsland, í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir að smygla tuttugu og sjö kílóum af hassi til landsins.

Bræðurnir neituðu sök en dómurinn taldi framburð þeirra ótrúverðugan og telur dómurinn að gögn málsins sanni að þeir hafi staðið í stórfelldu fíkniefnasmygli. Davíð Ben á ekki langan sakaferil að baki utan þess að hann var fyrir tólf árum dæmdur í árs fangelsi fyrir fíkniefnamisferli.

Rúnar Ben bróðir hans á hins vegar langan brotaferil að baki og þykir hann hafa sýnt eindreginn brotavilja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×