Erlent

Barroso dregur í land

Jose Manuel Barroso, tilvonandi forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, virðist að nokkru leyti ætla að draga í land með val sitt á framkvæmdastjórn sambandsins vegna þrýstings víða að. Barroso hafði tilnefnt 24 manna framkvæmdastjórn og sagðist hvergi ætla að hvika frá vali sínu en þegar ljóst þótti að ekki næðist sátt um tilnefninguna sagði Barroso að líklega þyrfti hann að gera nokkrar breytingar. Sérstaklega er deilt um val hans á Ítalanum Rocco Buttiglione sem yfirmanns dóms- og mannréttindamála en það reynist þrautin þyngri fyrir Barroso að hverfa frá þeirri ákvörðun því Ítalir segjast ekki munu sætta sig við að Buttiglione verði skipt út.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×