Tíska og hönnun

Loðhælar og loðhúfur

Þau Birna Hafstein og Ívar Örn Sverrisson leikarar eiga það sameiginlegt að uppáhaldsvetrarflíkurnar þeirra eru loðnar, mjúkar og hlýjar. Vetrarflíkur í uppáhaldi hjá Birnu eru fjólublái loðkraginn hennar og loðhælar. Ívar aftur á móti heldur upp á lopapeysuna sína og lopahúfu.

Fréttablaðið mælti sér mót við þau í miðjum frumsýningarönnun en þau leika bæði í söngleiknum Litlu stúlkunni með eldspýturnar sem frumsýndur verður um helgina. Þau mættu í uppáhaldsvetrarfötunum enda má segja að vetur hafi gengið í garð í vikunni. Þau sögðu líka frá því hvað er efst á óskalistanum í vetur. Birnu langar mest í pels en Ívar í snjósleða.

Birna:

Fjólublái loðkraginn.

Hvar: Keyptur á Portobello Market í London og ég fékk hann að gjöf frá kærastanum mínum.

Hvenær: Fyrir svona fjórum árum.

Af hverju í uppáhaldi: Rosalega mjúkur og hlýr og fallegur á litinn.

Loðhælarnir:

Hvar: Móðir mín keypti þá einhvers staðar í útlöndum á áttunda áratugnum.

Hvenær: Ég gróf þá upp fyrir tveimur árum.

Af hverju: Flottir og hlýir og vekja upp minningar frá barnæskunni.

Efst á óskalistanum:

Mjúk flík sem skýlir mér fyrir eldi og brennisteini íslenskrar veðráttu. Skósíður pels með háum kraga eða hettu frá Eggerti feldskera væri ekki slæmur.

Ívar:

Lopapeysan

Hvar: Lopapeysuna keypti mamma handa mér í Tallinn þegar hún var þar á ferðalagi.

Hvenær: Fyrir fimm árum síðan

Af hverju: Mér finnst munstrið fallegt, liturinn er klassískur og svo er hún svakalega hlý.

Loðhúfan:

Hvar: Fékk hana líka frá mömmu, hún keypti hana í einhverri heildsölu í Kópavogi held ég þegar hún var í búningaleit.

Hvenær: Ekki viss, ég held fyrir fjórum árum síðan.

Af hverju í uppáhaldi: Á ekkert sem ver mig jafn vel fyrir vetrarkuldanum.

Efst óskalistanum:

Góður snjósleði, hraðskreiður og öruggur fyrir íslenskar aðstæður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×