Mómæla umbótum 30. ágúst 2004 00:01
Tugir þúsunda ævareiðra Þjóðverja ruddust út á götur borga og bæja í dag til að mótmæla fyrirhuguðum umbótum á velferðarkerfinu. Schröder kanslari segir umbætur óumflýjanlegar, en almenningur skellir skollaeyrum við orðum hans. Þær umbætur sem Schröder segir nauðsynlegar felast meðal annars í því að skera niður bætur til þeirra sem glíma við atvinnuleysi í lengri tíma og harðari úrræði til að neyða atvinnulausa til að taka hvaða starfstilboðum sem er. Þetta líkar Þjóðverjum lítt og undanfarnar vikur hafa þeir látið óánægju sína í ljós á götum úti. Mótmælin náðu þó nýju hámarki í dag þegar skipuleggjendur gerðu ráð fyrir meira en 200 þúsund mótmælendum í yfir 200 borgum og bæjum víða um land. Mest eru mótmælin þó í Austur-Þýskalandi gamla, þar sem atvinnuleysi er mikið og stórum hluta almennings finnst ennþá að það sé hlutverk ríkisins að sjá fyrir þeim sem ekki geta það sjálfir. Mánudagsmótmæli eins og þau sem fram fóru í dag eru raunar sögð upprunnin í Leipzig, þar sem dauðuppgefnir borgarar mótmæltu spillingu og stöðnuðu kerfi fyrir fimmtán árum. Þó að deila megi um þá söguskýringu er það mat margra að þau mótmæli hafi markað upphaf endaloka kommúnistaveldisins austanmegin Berlínarmúrs. Leipzig var á ný þungamiðja mótmælanna í dag, en þar skaut Oscar Lafontain, gamall mótherji Schröders kanslara, upp höfðinu og hafði hátt. Stjórnmálaskýrendur segja þetta hugsanlega upphaf mikilla átaka á meðal Jafnaðarmanna, aðrir telja Lafontaine reyna með ósmekklegum hætti að blása lífi í steindauðan stjórnmálaferil sinn.
Erlent Fréttir Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Innlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Fleiri fréttir Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Sjá meira