Menning

Veisluhöld á Breiðafirði

"Þetta er sambland af veisluhöldum og náttúruskoðun og tekur 3-4 tíma," byrjar Ragnheiður Valdimarsdóttir, markaðsstjóri hjá Sæferðum í Stykkishólmi, lýsingu sína á ferðum sem farnar eru á vit ævintýranna í Breiðafirði. Síðan heldur hún áfram: "Það er siglt af stað frá Stykkishólmi og aðeins litið á eyjarnar í kring en mjög fljótlega er settur út plógur og byrjað að veiða. Síðan er borið inn hlaðborð og matseðillinn er mismunandi en þar eru meðal annars sjávarréttir og snöggsteiktur svartfugl."

Tvö skip eru í þessum siglingum með sali fyrir 90-100 farþega hvort og gott útsýnisþilfar. Ragnheiður segir ferðirnar vinsælar fyrir starfsmannafélög og hópa og sé lágmarksfjöldi 25 manns. "Sjóferð sælkerans" segir hún vinsælustu veisluferðina enda snúist hún mikið um matinn. "En bæði í upphafi ferðar og á meðan á máltíð stendur er lónað á milli eyjanna á Hvammsfirði," bendir hún á. Meðal náttúrufyrirbæra á leiðinni nefnir Ragnheiður fjölbreytilegar stuðlabergsmyndanir og segir alltaf talsvert af fugli á sveimi, meðal annars láti örninn oft sjá sig á haustin.

Nú er verið að taka haustgjald upp í þessum ferðum sem er talsvert lægra en það sem í gildi er yfir sumarmánuðina. Verðið á mann er nú 4.950 krónur og afsláttur er fyrir börn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×