Lífið

Tildurrófur meiða Lulu

Tildurrófurnar bresku Jennifer Saunders og Dawn French sem standa á bak við gamanþættina Absolutely Fabulous fór heldur illa með söngkonuna Lulu við tökur á næstu þáttaröð. Fregnir herma að það hafi þurft að flytja söngkonuna, sem er frægust fyrir þátttöku sína í Eurovison á árum áður og að hafa sungið titillag James Bond myndarinnar The Man With The Golden Gun, á sjúkrahús eftir að stöllurnar skutu á hana í atriði sem átti að gera grín að senu úr kvikmyndinni Pulp Fiction. "Það fór allt úrskeiðis við æfingar," segir Lulu. "Það blæddi úr mér og ég þurfti að láta sauma nokkur spor og ég er enn þá með ör." Saunders og French hafa beðið Lulu fyrirgefningar og sendu henni silfurskart með orðunum "Við skutum Lulu" og "Sorry" gröfnum í silfrið.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.