Menning

Göngubók sem höfðar til allra

"Kannski er hún samt helst ætluð þeim sem alltaf hefur langað á fjöll en ekki haft sig af stað. Það er alls ekki eins erfitt og hættulegt að ganga í óbyggðum og margir ætla og í bókinni eru ýmis góð ráð til þeirra sem eru að stíga fyrstu skrefin. Bókinni er skipt niður í tólf kafla þar sem bæði er farið yfir undirbúning ferðar og svo hvernig á að bera sig að á fjöllum. Ég vildi samt forðast að skrifa beina kennslubók í stikkorðastíl heldur leyfa tilfinnngu minni og reynslu af upplifun á náttúrunni að skína í gegn. Ég er sjálfur í björgunarsveit og hef verið fjallaleiðsögumaður í átta ár svo hér miðla ég af reynslu minni og samferðamanna minna.

Hvað er svona stórkostlegt við að ganga á fjöll? "Það sem dregur mig á fjöll er ferðalagið sjálft, því að í hverri ferð læri ég betur og betur að tengjast náttúrunni og sjálfum mér um leið. Þessi tenging við náttúruna er náin og þú færð hana hvorki á bíl né hestbaki. Að kljást við allar eigindir náttúrunnar á tveimur jafnfljótum, veðurfar, landslag og síðast en ekki síst sjálfan sig sem hluta af henni, er ómetanlegt."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×