Yfirlýsing Annans veldur úlfaþyt 16. september 2004 00:01
Yfirlýsing Kofis Annans, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, um að árásin á Írak hafi verið ólögleg, hefur valdið úlfaþyt meðal innrásarþjóðanna. „Svívirðileg pólitísk afskipti,“ segja sumir. „Loksins talar einhver hreint út,“ segja aðrir. Kofi Annan hefur, hingað til, haldið sig nokkuð til hlés og forðast að taka afgerandi afstöðu í þessu deilumáli. Yfirlýsing hans í viðtali við breska ríkisútvarpið BBC hefur því vakið mikla athygli. Þar sagði Annan að það hefði klárlega verið ólöglegt að fara í stríð við Írak án samþykkis Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Stríðið hafi reynst heiminum erfið lexía en vonandi hafi allir dregið þann lærdóm af að í framtíðinni færi best á því að vinna saman í gegnum Sameinuðu þjóðirnar. Þessi yfirlýsing hefur hleypt illu blóði í ráðamenn þeirra þjóða sem helst studdu stríðið. Í Bandaríkjunum er Annan jafnvel sakaður um að reyna að hafa áhrif á forsetakosningarnar með þessu tali. Og ráðamenn í Bretlandi, Japan og Ástralíu vísa ásökun Annans alfarið á bug. John Howard, forsætisráðherra Ástralíu, segir sjónarmið Annans vera ólíkt því lögfræðiáliti sem yfirvöld í Ástralíu hafi fengið og einnig, eftir því sem hann best vissi, þeim lögfræðiálitum sem ríkisstjórnir Bretlands og Bandaríkjanna fengu.
Erlent Fréttir Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Sjá meira