Ívan heldur áfram að skemma 13. september 2004 00:01
Fellibylurinn Ivan sækir í sig veðrið og stefnir nú hraðbyri í áttina að Kúbu. Fjörutíu og sjö hafa farist í veðurofsanum í Karíbahafi. Ívan er einhver öflugasti fellibylur sem sögur fara af, en hann hefur nú náð styrkleikagráðu fimm, sem er hæsta stig sem slíkur bylur getur náð. Búist er við því að Ívan skelli á vesturströnd Kúbu í kvöld. Íbúar þar finna nú þegar fyrir fyrstu áhrifum fellibylsins en búist er við að hann nái fullum styrk sínum þar seinni partinn í dag með vindhviðum sem gætu náð allt upp í 70 metrum á sekúndu. Óttast er að sex til átta metra há flóðbylgja fylgi í kjölfarið. Veðurfræðingar telja nú líklegra að miðja fellibylsins verði nær Júkataskaga en Kúbu og verður hann þriðji öflugi fellibylurinn sem hrellir fólkið þar á mánuði. Þar sem Ívan hefur farið um hefur hann valdið gríðarlegri eyðileggingu, meðal annars á Grenada, en þar er Sólveig Ólafsdóttir, starfsmaður Rauða Krossins. Hún segir ástandið skelfilegt, eyðilegginguna ótrúlega og þær fréttir sem hafi borist frá Grenada engum orðum auknar. 90% bygginga hafi orðið fyrir skemmdum og íbúar séu í áfalli. Engin skilvirk skráning hafi farið fram á heimilislausum og mikil ringulreið ríki. Það eina sem Rauði Krossinn geti farið eftir séu upplýsingar héðan og þaðan, sem aflað er í samvinnu við aðrar hjálparstofnanir og fulltra ríkisstjórnarinnar. Hún segir að 60 þúsund manns af 100 þúsund íbúum hafi þurft að leita sér skjóls annars staðar en heima hjá sér vegna skemmda á húsum. Sólveig segir allar rafmagnslínur niðri og því sé erfitt að komast leiðar sinnar, rétt sé byrjað að hreinsa til í höfuðborginni og því sé aðeins auðveldara að fara um þar nú, en ekki sé gott að segja hver áhrif fellibylsins voru annars staðar á Eyjunni. Hún segir vatn af skornum skammti, en þó sé unnð að því að laga vatnskerfi landsins, sem sé þó erfitt vegna rafmagnsleysisns. Matvælaskorur sé líka orðinn mikill og engar búðir opnar, litlar matarbirgðir hafi borist og allir finni fyrir því, jafnt hjálparstarfsmenn sem íbúar á Grenada. Aðgangur að fæðu og rafmagni sé af skornum skammti fyrir alla á svæðinu. Sólveig telur neyðaraðstoð þurfa að byrja strax og Rauði krossinn hefur fengið fyrsta farm af hjálpargögnum og við munum byrja okkar greiningu í dag, alveg ljóst að hjálparstofnanir munu biðja um frerkari fjárveitingar. Allir íbúar orðið fyrir persónulegum missi, starfsmenn RauðaKrossins á Grenada vinna allan sólarhringinn, hins vegar er ekki hægt að kalla á sjálfboðaðliða, þar sem samskiptakerfi liggur niðri. Á Ceyman-eyjum sviptust þök af húsum, tré rifnuðu upp með rótum, gríðarstórar flóðöldur mynduðust og þurftu margir eyjaskeggjar að flýja upp á húsþök til að komast undan vatnsflaumi fellibylsins.
Erlent Fréttir Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Fleiri fréttir Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Sjá meira