Pútín herðir tökin 13. september 2004 00:01
Vladímír Pútín, forseti Rússlands, hefur dregið lærdóm af hryðjuverkunum í Beslan, og telur nauðsynlegt að auka miðstýringu og völd Kremlar til að berjast gegn hryðjuverkavánni. Í leiðinni myndi hann auka enn völd sín í landinu. Pútín er þeirrar skoðunar, að ekki hafi tekist sem skildi að koma á fót sterku ríki í Rússlandi, og að það hafi berlega komið í ljós í Beslan. Því sé nú nauðsynlegt að grípa til aðgerða og styrkja ríkið, svo að það megi sem best berjast gegn hryðjuverkum og öðrum vandamálum. Tillögur Pútíns felast meðal annars í því, að framvegis verði ríkisstjórar og forsetar í sjálfstjórnarhéruðum og sjálfstjórnarlýðveldum tilnefndir af stjórnvöldum í Kreml. Hlutverk héraðsþinga yrði þá aðeins að staðfesta tilnefningu kandídats stjórnvalda. Að auki vill Pútín gera umbætur á kosningafyrirkomulagi, og leggja af beina kosningu. Í staðinn vill hann að allir þingmenn séu kjörnir af flokkslistnum, en hingað til hefur helmingur verið kjörinn beinni kosningu. Stuðningsmenn Pútíns hafa löngum viljað losna við sjálfstæða þingmenn úr Dúmunni og Pútín hefur sagst viljað koma á kerfi, þar sem nokkrir stórir flokkar réðu, en ekki skarar smáflokka og stakra þingmanna. Flokkurinn eitt Rússland, sem styður Pútín, ræður nú tveimur þriðju hlutum Dúmunnar, en hefði háttur Pútíns verið hafður á í síðustu kosningum, hefði flokkurinn hlotið mun fleiri sæti.
Erlent Fréttir Mest lesið Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Orbán hættir á þingi Erlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Sjá meira